„Guðmundur Tómasson (Bergstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

(7 millibreytingar ekki sýndar frá 3 notendum)
Lína 1: Lína 1:
Guðmundur Tómasson, [[Bergsstaðir|Bergsstöðum]], fæddist í Landeyjum þann 24. júní 1886. Guðmundur byrjaði ungur sjómennsku og var á fyrstu mótorbátunum eins og á [[Ingólfur|Ingólfi]] með [[Guðjón Jónsson|Guðjóni Jónssyni]] á [[Sandfell]]i og fleiri bátum. Formennsku byrjaði Guðmundur árið 1912 á Víking. Síðan tók hann við [[Marz]] og var með hann til ársins 1921. Eftir það var Guðmundur með hina ýmsu báta næstu áratugina á eftir. Hann var á sjó í rúmlega 60 ár og þar af formaður í 50 ár.
'''Guðmundur Tómasson''', [[Bergsstaðir|Bergsstöðum]] fæddist í Landeyjum þann 24. júní 1886 og lést 12. október 1967. Guðmundur byrjaði ungur sjómennsku og var á fyrstu mótorbátunum eins og á [[Ingólfur|Ingólfi]] með [[Guðjón Jónsson (Sandfelli)|Guðjóni Jónssyni]] á [[Sandfell]]i og fleiri bátum. Formennsku byrjaði Guðmundur árið 1912 á Víking. Síðan tók hann við [[Marz]] og var með hann til ársins 1921. Eftir það var Guðmundur með hina ýmsu báta næstu áratugina á eftir. Hann var á sjó í rúmlega 60 ár og þar af formaður í 50 ár.

[[Óskar Kárason]] samdi formannavísu um Guðmund:
[[Óskar Kárason]] samdi formannavísu um Guðmund:
Lína 10: Lína 10:
* ''Sjómannablaðið Víkingur''. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.}}
* ''Sjómannablaðið Víkingur''. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.}}

[[Flokkur:Fólk]]
=Frekari umfjöllun=
[[Flokkur:Formenn]]

'''Guðmundur Tómasson''' skipstjóri, útgerðarmaður  á [[Bergstaðir|Bergstöðum]]  fæddist 24. júní 1886 í Gerðum í Landeyjum og lést 12. október 1967.

Foreldrar hans voru Tómas Jónsson bóndi, f. 2. júní 1847 í Fljótshlíð, d. 11. október 1945, og kona hans Þórhildur Ólafsdóttir húsfreyja, f. 9. september 1857 í Gerðum, d. 16. apríl 1949.

Guðmundur var með foreldrum sínum á Arnarhóli í V-Landeyjum 1901 og 1910.

Hann hóf sjómennsku með föður sínum við Landeyjasand 13 ára, varð fullgildur háseti á áraskipi 16 ára.

Hann stundaði vertíðir í Eyjum upp úr aldamótum, fyrst á vélbát 1907, á [[Ingólfur VE 108|mb Ingólfi VE 108]] 1912.

Guðmundur varð skipstjóri á [[Víkingur VE 133|mb. Víkingi VE 133]] 1912 og í fjölda vertíða.

Skipstjóri var hann  á [[Mars VE 143|mb Mars VE 143]], einnig var hann lengi með [[Höfrungur VE|Höfrung]], sem hann átti. Hann var skipstjóri fram yfir 1960, í full 50 ár.

Guðmundur  fluttist til Eyja 1916 og bjó í [[Frydendal]] með Jónínu  við  giftingu þeirra á því ári. Þau bjuggu á [[Hóll|Hól]] 1917 og enn 1919, er Jónína lést  eftir barneign og barnið nokkrum vikum síðar.

Hann bjó enn á Hól 1920, í [[Tunga|Tungu við Heimagötu]] við síðari giftingu 1922, á [[Reynir|Reyni]] 1924,  á [[Þorvaldseyri]] 1926, í [[Landlyst]] 1927 og enn 1930, á [[Þingvellir|Þingvöllum]] 1934 og enn 1937, á [[Sólberg|Sólbergi við Brekastíg 3]] 1940, [[Bergstaðir|Bergstöðum]] 1945 og enn við andlát 1967. Elín bjó enn á Bergstöðum við Gos 1973. Hún lést 1978.

I. Fyrri kona Guðmundar, (27. desember 1916), var [[Jónína Margrét Jónsdóttir]], f. 26. ágúst 1893 í Snotru í A-Landeyjum,  d. 10. maí 1919 á Hól.

Barn þeirra var

1. Jón Guðmundsson, f. 20. apríl 1919 á Hól, d. 16. júlí 1919.

II. Síðari kona Guðmundar, (27. janúar 1922), var [[Elín J. Sigurðardóttir (Bergstöðum)|Elín Jóhanna Sigurðardóttir]], f. 5. júní 1901 á Seyðisfirði, d. 10. október 1978.

Börn þeirra voru:

2. [[Óskar Jóhann Guðmundsson]] sjómaður,  vélstjóri í Reykjavík, f. 15. janúar 1924 á Reyni, d. 24. mars 1995.

3. [[Tómas Þ. Guðmundsson|Tómas Þórhallur Guðmundsson]] rafvirkjameistari í Ólafsvík, f. 9. júní 1926 á Þorvaldseyri, d. 21. janúar 2004.

4. [[Ólafur Guðmundsson (Bergstöðum)|Guðjón ''Ólafur'' Guðmundsson]] skipstjóri, útgerðarmaður í Eyjum, f. 1. nóvember 1927 í Landlyst, d. 24. desember 1975.

5. [[Hjördís Guðmundsdóttir (Bergstöðum)|Hjördís Kristín Guðmundsdóttir]] talsímakona, f. 30. júní 1931 í Landlyst.

6. Sigurður Guðmundsson, f. 5. október 1932 í Landlyst, d. 21. júlí 1937 á Þingvöllum.

{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Íslendingabók.is.
*Manntöl.
*Prestþjónustubækur. }}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Skipstjórar]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur: Íbúar í Frydendal]]
[[Flokkur: Íbúar á Hól]]
[[Flokkur: Íbúar í Tungu]]
[[Flokkur: Íbúar á Reyni]]
[[Flokkur: Íbúar á Þorvaldseyri]]
[[Flokkur: Íbúar í Landlyst]]
[[Flokkur: Íbúar á Þingvöllum]]
[[Flokkur: Íbúar á Sólbergi]]
[[Flokkur: Íbúar á Bergstöðum]]
[[Flokkur: Íbúar við Miðstræti]]
[[Flokkur: Íbúar við Heimagötu]]
[[Flokkur: Íbúar við Bárustíg]]
[[Flokkur: Íbúar við Vestmannabraut]]
[[Flokkur: Íbúar við Strandveg]]
[[Flokkur: Íbúar við Njarðarstíg]]
[[Flokkur: Íbúar við Brekastíg]]
[[Flokkur: Íbúar við Urðaveg]]

Núverandi breyting frá og með 26. október 2018 kl. 20:48

Guðmundur Tómasson, Bergsstöðum fæddist í Landeyjum þann 24. júní 1886 og lést 12. október 1967. Guðmundur byrjaði ungur sjómennsku og var á fyrstu mótorbátunum eins og á Ingólfi með Guðjóni Jónssyni á Sandfelli og fleiri bátum. Formennsku byrjaði Guðmundur árið 1912 á Víking. Síðan tók hann við Marz og var með hann til ársins 1921. Eftir það var Guðmundur með hina ýmsu báta næstu áratugina á eftir. Hann var á sjó í rúmlega 60 ár og þar af formaður í 50 ár.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðmund:

Gvendur traustur Tómasson
telur margan róður.
Ennþá girnist afla von
arkar stjórinn góður.

Heimildir

• Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Frekari umfjöllun

Guðmundur Tómasson skipstjóri, útgerðarmaður á Bergstöðum fæddist 24. júní 1886 í Gerðum í Landeyjum og lést 12. október 1967.
Foreldrar hans voru Tómas Jónsson bóndi, f. 2. júní 1847 í Fljótshlíð, d. 11. október 1945, og kona hans Þórhildur Ólafsdóttir húsfreyja, f. 9. september 1857 í Gerðum, d. 16. apríl 1949.

Guðmundur var með foreldrum sínum á Arnarhóli í V-Landeyjum 1901 og 1910.
Hann hóf sjómennsku með föður sínum við Landeyjasand 13 ára, varð fullgildur háseti á áraskipi 16 ára.
Hann stundaði vertíðir í Eyjum upp úr aldamótum, fyrst á vélbát 1907, á mb Ingólfi VE 108 1912.
Guðmundur varð skipstjóri á mb. Víkingi VE 133 1912 og í fjölda vertíða.
Skipstjóri var hann á mb Mars VE 143, einnig var hann lengi með Höfrung, sem hann átti. Hann var skipstjóri fram yfir 1960, í full 50 ár.
Guðmundur fluttist til Eyja 1916 og bjó í Frydendal með Jónínu við giftingu þeirra á því ári. Þau bjuggu á Hól 1917 og enn 1919, er Jónína lést eftir barneign og barnið nokkrum vikum síðar.
Hann bjó enn á Hól 1920, í Tungu við Heimagötu við síðari giftingu 1922, á Reyni 1924, á Þorvaldseyri 1926, í Landlyst 1927 og enn 1930, á Þingvöllum 1934 og enn 1937, á Sólbergi við Brekastíg 3 1940, Bergstöðum 1945 og enn við andlát 1967. Elín bjó enn á Bergstöðum við Gos 1973. Hún lést 1978.

I. Fyrri kona Guðmundar, (27. desember 1916), var Jónína Margrét Jónsdóttir, f. 26. ágúst 1893 í Snotru í A-Landeyjum, d. 10. maí 1919 á Hól.
Barn þeirra var
1. Jón Guðmundsson, f. 20. apríl 1919 á Hól, d. 16. júlí 1919.

II. Síðari kona Guðmundar, (27. janúar 1922), var Elín Jóhanna Sigurðardóttir, f. 5. júní 1901 á Seyðisfirði, d. 10. október 1978.
Börn þeirra voru:
2. Óskar Jóhann Guðmundsson sjómaður, vélstjóri í Reykjavík, f. 15. janúar 1924 á Reyni, d. 24. mars 1995.
3. Tómas Þórhallur Guðmundsson rafvirkjameistari í Ólafsvík, f. 9. júní 1926 á Þorvaldseyri, d. 21. janúar 2004.
4. Guðjón Ólafur Guðmundsson skipstjóri, útgerðarmaður í Eyjum, f. 1. nóvember 1927 í Landlyst, d. 24. desember 1975.
5. Hjördís Kristín Guðmundsdóttir talsímakona, f. 30. júní 1931 í Landlyst.
6. Sigurður Guðmundsson, f. 5. október 1932 í Landlyst, d. 21. júlí 1937 á Þingvöllum.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.