Guðmundur Karlsson (Reykholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2005 kl. 14:51 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2005 kl. 14:51 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur Karlsson

Guðmundur Karlsson, Framkvæmdastjóri. Guðmundur var alþingismaður úr Vestmannaeyjum. Hann var kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978 og var landskjörinn þingmaður 1979. Guðmundur fæddist í Vestmannaeyjum þann 9. júní árið 1936. Foreldrar hans eru Karl Guðmundsson skipstjóri og útgerðarmaður og Unnur Jónsdóttir. Guðmundur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lagði stund á lögfræði um tíma, en gerðist svo verksmiðjustjóri hjá Vinnslustöðinni h. f. og síðar framkvæmdastjóri fyrir Fiskiðjuna h. f. í Vestmannaeyjum árið 1967-1992. Guðmundur var í framkvæmdastjórn í Vestmannaeyjum fyrir stjórn Viðlagasjóðs á meðan eldgosið á Heimaey stóð yfir og síðar við hreinsun bæjarins af ösku og gjalli að gosinu loknu. Hann var framkvæmdastjóri fyrir Sölumiðstöðar hraðfrystihúsanna í Tokyo í Japan, Iceland Sea-Products Co., Ltd., frá 1974 til 1975.


Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930