„Guðmundur Karlsson (Reykholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 7: Lína 7:
<small>
<small>


*''Eyjar gegnum aldirnar'' Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.


[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Þingmenn]]

Útgáfa síðunnar 30. júní 2005 kl. 15:47

Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri og alþingismaður.

Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri, var alþingismaður úr Vestmannaeyjum. Hann var kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978 og var landskjörinn þingmaður 1979. Guðmundur fæddist í Vestmannaeyjum þann 9. júní árið 1936. Foreldrar hans eru Karl Guðmundsson skipstjóri og útgerðarmaður og Unnur Jónsdóttir. Guðmundur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lagði stund á lögfræði um tíma, en gerðist svo verksmiðjustjóri hjá Vinnslustöðinni h. f. og síðar framkvæmdastjóri fyrir Fiskiðjuna h. f. í Vestmannaeyjum árið 1967-1992. Guðmundur var í framkvæmdastjórn í Vestmannaeyjum fyrir stjórn Viðlagasjóðs á meðan eldgosið á Heimaey stóð yfir og síðar við hreinsun bæjarins af ösku og gjalli að gosinu loknu. Hann var framkvæmdastjóri fyrir Sölumiðstöðar hraðfrystihúsanna í Tokyo í Japan, Iceland Sea-Products Co., Ltd., frá 1974 til 1975. Þá var Guðmundur formaður Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum 1965— 1966 og bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum 1970—1974.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.