„Guðmundur Karlsson (Reykholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''Guðmundur Karlsson, Framkvæmdastjóri.''' Alþingismaður úr Vestmannaeyjum. Kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978 og landskjörinn þingmaður 1979. Fæddur í Vestmannaeyjum 9. júní 1936. Foreldrar: Karl skipstjóri og útgerðar maður Guðmundsson trésmiðameistari magnússonar að Goðalandi í Vestmannaeyjum og kona hans Unnur Jónsdóttir Ingleifssonar skipstjóra í Reykholti. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953. Lagði stund á lögfræði um tíma, en gerðist verksmiðjustjóri hjá Vinnslustöðinni h. f. og framkvæmdastjóri fyrir Fiskiðjuna h. f. í Vestmannaeyjum árið 1967 og síðan. Var í framkvæmdastjórn í Vestmannaeyjum fyrir stjórn Viðlagasjóðs meðan eldgosið á Heimaey stóð yfir og síðar við hreinsun bæjarins af ösku og gjalli að gosinu loknu. Var framkvæmdastjóri fyrir Sölumiðstöðar hraðfrystihúsanna í Tokyo í Japan, Iceland Sea-Products Co., Ltd., 1974 til 1975.
'''Guðmundur Karlsson, Framkvæmdastjóri.''' Guðmundur var alþingismaður úr Vestmannaeyjum. Hann var kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978 og var landskjörinn þingmaður 1979. Guðmundur fæddist í Vestmannaeyjum þann 9. júní árið 1936. Foreldrar hans eru Karl Guðmundsson skipstjóri og útgerðarmaður og Unnur Jónsdóttir. Guðmundur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lagði stund á lögfræði um tíma, en gerðist svo verksmiðjustjóri hjá Vinnslustöðinni h. f. og síðar framkvæmdastjóri fyrir Fiskiðjuna h. f. í Vestmannaeyjum árið 1967-**** . Guðmundur var í framkvæmdastjórn í Vestmannaeyjum fyrir stjórn Viðlagasjóðs á meðan eldgosið á Heimaey stóð yfir og síðar við hreinsun bæjarins af ösku og gjalli að gosinu loknu. Hann var framkvæmdastjóri fyrir Sölumiðstöðar hraðfrystihúsanna í Tokyo í Japan, Iceland Sea-Products Co., Ltd., frá 1974 til 1975.





Útgáfa síðunnar 29. júní 2005 kl. 08:40

Guðmundur Karlsson, Framkvæmdastjóri. Guðmundur var alþingismaður úr Vestmannaeyjum. Hann var kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978 og var landskjörinn þingmaður 1979. Guðmundur fæddist í Vestmannaeyjum þann 9. júní árið 1936. Foreldrar hans eru Karl Guðmundsson skipstjóri og útgerðarmaður og Unnur Jónsdóttir. Guðmundur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lagði stund á lögfræði um tíma, en gerðist svo verksmiðjustjóri hjá Vinnslustöðinni h. f. og síðar framkvæmdastjóri fyrir Fiskiðjuna h. f. í Vestmannaeyjum árið 1967-**** . Guðmundur var í framkvæmdastjórn í Vestmannaeyjum fyrir stjórn Viðlagasjóðs á meðan eldgosið á Heimaey stóð yfir og síðar við hreinsun bæjarins af ösku og gjalli að gosinu loknu. Hann var framkvæmdastjóri fyrir Sölumiðstöðar hraðfrystihúsanna í Tokyo í Japan, Iceland Sea-Products Co., Ltd., frá 1974 til 1975.


Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930