„Guðmundur Karlsson (Reykholti)“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
m
Verndaði „Guðmundur Karlsson (Reykholti)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))
Ekkert breytingarágrip

m (Verndaði „Guðmundur Karlsson (Reykholti)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))

(24 millibreytingar ekki sýndar frá 9 notendum)
Lína 1: Lína 1:
Guðmundur Karlsson, Framkvæmdastjóri. Alþingismaður úr Vestmannaeyjum. Kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978 og landskjörinn þingmaður 1979. Fæddur í Vestmannaeyjum 9. júní 1936. Foreldrar: Karl skipstjóri og útgerðar maður Guðmundsson trésmiðameistari magnússonar að Goðalandi í Vestmannaeyjum og kona hans Unnur Jónsdóttir Ingleifssonar skipstjóra í Reykholti. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953. Lagði stund á lögfræði um tíma, en gerðist verksmiðjustjóri hjá Vinnslustöðinni h. f. og framkvæmdastjóri fyrir Fiskiðjuna h. f. í Vestmannaeyjum árið 1967 og síðan. Var í framkvæmdastjórn í Vestmannaeyjum fyrir stjórn Viðlagasjóðs meðan eldgosið á Heimaey stóð yfir og síðar við hreinsun bæjarins af ösku og gjalli að gosinu loknu. Var framkvæmdastjóri fyrir Sölumiðstöðar hraðfrystihúsanna í Tokyo í Japan, Iceland Sea-Products Co., Ltd., 1974 til 1975.
[[Mynd:Guðmundur Karlsson.jpg|thumb|200px|Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri og alþingismaður.]]
'''Guðmundur Karlsson''' fæddist í Vestmannaeyjum þann 9. júní árið 1936. Hann var alþingismaður Vestmannaeyja á árunum 1978-1983. Hann var kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978 og var landskjörinn þingmaður 1979. Foreldrar hans eru [[Magnús Karl Guðmundsson|Karl Guðmundsson]] skipstjóri og útgerðarmaður, og [[Unnur Jónsdóttir (Reykholti)|Unnur Jónsdóttir]]. Guðmundur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lagði stund á lögfræði um tíma, en gerðist svo verksmiðjustjóri hjá [[Vinnslustöðin|Vinnslustöðinni]] hf. og síðar framkvæmdastjóri fyrir [[Fiskiðjan|Fiskiðjuna]] hf. í Vestmannaeyjum árið 1967-1992. Guðmundur var í framkvæmdastjórn í Vestmannaeyjum fyrir stjórn Viðlagasjóðs á meðan eldgosið á Heimaey stóð yfir og síðar við hreinsun bæjarins af ösku og gjalli að gosinu loknu. Hann var framkvæmdastjóri fyrir Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í Tokyo í Japan, Iceland Sea-Products Co., Ltd., frá 1974 til 1975. Þá var Guðmundur formaður [[Eyverjar|Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum]] 1965—1966 og [[bæjarstjórn|bæjarfulltrúi]] í Vestmannaeyjum 1970—1974.

{{Heimildir|
* [[Guðlaugur Gíslason]]: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.}}
=Frekari umfjöllun=
'''Guðmundur Karlsson''' frá [[Reykholt (eldra)|Reykholti]], framkvæmdastjóri, alþingismaður, forstöðumaður fæddist þar 9. júní 1936.

Foreldrar hans voru [[Magnús Karl Guðmundsson|Karl Guðmundsson]] skipstjóri, f. 4. maí 1903 í Reykjavík, d. 10. maí 1993, og kona hans [[Unnur Jónsdóttir (Reykholti)|Unnur Sigrún Jónsdóttir]] frá Reykholti eldra, húsfreyja, f. þar 6. júní 1912, d. 16. febrúar 1995.

Börn Unnar og Karls:

1.  [[Jón Karlsson (Reykholti)|Jón Karlsson]], f. 12. ágúst 1934, d. 12. maí 2003.

2.  [[Guðmundur Karlsson (Reykholti)|Guðmundur Karlsson]], f. 9. júní 1936.

3.  [[Ellert Karlsson (Reykholti)|Karl ''Ellert'' Karlsson]] f. 5. desember 1944, d. 13. apríl 2022.

Guðmundur var með foreldrum sínum í æsku.

Hann lauk landsprófi í [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólanum]] 1953, stúdentsprófi í Menntaskólanum á Laugarvatni 1957. Guðmundur nam lögfræði í 2 ár í Háskóla Íslands.

Hann var framleiðslustjóri í [[Vinnslustöðin]]ni hf. 1963–1967, framkvæmdastjóri [[Fiskiðjan|Fiskiðjunnar]] í Vestmannaeyjum 1967–1992, framkvæmdastjóri [[Viðlagasjóður|Viðlagasjóðs]] í Vestmannaeyjum 1973.

Guðmundur var markaðsstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Japan 1974–1975,  forstöðumaður veiðieftirlits Fiskistofu frá 1992.

Guðmundur var formaður Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum 1965– 1966,  bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum 1970–1974, formaður Vinnuveitendafélags Vestmannaeyja 1984–1985 og 1991–1992. Hann sat í í varastjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna 1976–1985, í stjórn Sölumiðstöðvarinnar 1986–1992, í stjórn sölufyrirtækis SH í Bandaríkjunum, Coldwater, 1971–1992.
Guðmundur var alþingismaður Suðurlands 1978–1979, landskjörinn alþingismaður (Suðurlands) 1979–1983 fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Þau Ásta Guðbjörg giftu sig 1990. Þau búa í Kópavogi.

I. Kona Guðmundar, (9. nóvember 1990), er [[Ásta Guðbjörg Þórarinsdóttir]] frá [[Nýborg|Nýborg við Njarðarstíg 17]], húsfreyja, f. þar 1. nóvember 1938.

Börn þeirra:

1. Guðmundur Hörður Guðmundsson upplýsingafulltrúi Háskóla Íslands, f. 1. nóvember 1977. Sambúðarkona hans Ása Briem.

2. Karl Óðinn Guðmundsson starfaði hjá Icelandair, f. 2. október 1982. Kona hans Steinunn Fjóla Birgisdóttir.
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Ásta og Guðmundur.
*Íslendingabók.
*Manntöl.
*Morgunblaðið
*Prestþjónustubækur.
*Vefur Alþingis.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur:Alþingismenn]]
[[Flokkur: Framkvæmdastjórar]]
[[Flokkur: Markaðsstjórar]]
[[Flokkur: Forstöðumenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur: Íbúar í Reykholti (eldra)]]
[[Flokkur: Íbúar við Urðaveg]]

Leiðsagnarval