Guðlaugur Gíslason (alþingismaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júní 2005 kl. 13:53 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júní 2005 kl. 13:53 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaugur Gíslason, bæjarstjóri. Alþingismaður Vestmannaeyinga 1959 til 1978. Var fyrst kosinn á Alþing í vorkosningunum 1959 er Vestmannaeyjar voru síðast sérstakt kjördæmi og síðan af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Fæddur á Stafnesi í Miðneshreppi 1. ágúst 1908. Foreldrar Gísli (fæddur 19. janúar 1874, dáinn 9. júlí 1919) útgvegisbóndi, Geirmundssonar bónda á Kalmannstjörn í Gerðum, Gíslasonar og kona hans Þórunn Jakobína (Fædd 30. janúar 1875, dáin 27. maí 1965) Hafliðadóttir, bónda í Fjósum í Mýrdal, Narfason. Kvæntur Sigurlaugu (fædd 28l janúar 1911) Jónsdóttur kaupfélagsstjóra í Vestmannaeyjum, Hinrikssonar og konu hans Ingibjargar Theodórsdóttur Mathiesen. Var við nám í Köbmandsskolen í Kaupmannahöfn 1930 til 1931 og lauk þaðan prófi. Kaupmaður í Vestmannaeyjum 1932 til 1934 og 1948 til 1954. Bæjargjaldkeri þar 1934 til 1937 og hafnargjaldkeri 1937 til 1938. Kaupfélagsstjóri Neytendafélags Vestmannaeyja 1938 til 1942. Framkvæmdastjóri útgerðarfélagannaSæfells h. f. og Fells h. f. 1942 til 1948. Bæjarstjóri í Vestmannaeyjum 1594 til 1966. Átti sæti í bæjarstjórn Vestmannaeyja 1938 til 1946 og 1950 til 1966. Vararæðismaður Svíþjóðar 1944 til 1975. Í bankaráði Útvegsbanka Íslands 1961 til 1980. Skipaður 1971 í Fiskveiðilaganefnd. Skipaður 1972 í milliþinganefnd um samgöngumál Vestmannaeyinga. Kosinn 1973 í stjórn Viðlagasjóðs og skipaður aftur 1975 í Fiskveiðilaganefnd.