„Guðlaugur Brynjólfsson (Odda)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Lára Halla)
mEkkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''Guðlaugur Brynjólfsson''' fæddist 23. júlí árið 1890 og lést 30. desember 1972. Guðlaugur byggði húsið [[Oddi|Odda]] við [[Vestmannabraut]] og bjó þar.  
'''Guðlaugur Brynjólfsson''' fæddist 23. júlí árið 1890 og lést 30. desember 1972. Guðlaugur byggði húsið [[Oddi|Odda]] við [[Vestmannabraut]] og bjó þar.  
[[Mynd:Fermingarmynd.jpg|thumb|rigth|250px|Valgerður og  Guðlaugur ásamt börnum á fermingardegi Jóhannesar]]  
[[Mynd:Fermingarmynd.jpg|thumb|rigth|250px|Valgerður og  Guðlaugur ásamt börnum á fermingardegi Jóhannesar]]  
Fyrri kona Guðlaugs var Halla Jónsdóttir (lést 1918)og áttu þau tvö börn Sveinbjörn og Höllu, en áður átti Halla sonin Jóhannes G. Brynjólfsson (Stefánssonar skósmiðs frá Dölum).
Fyrri kona Guðlaugs var Halla Jónsdóttir (lést 1918) og áttu þau tvö börn Sveinbjörn og Höllu, en áður átti Halla sonin Jóhannes G. Brynjólfsson (Stefánssonar skósmiðs frá Dölum).
Seinni kona Guðlaugs var Valgerður Guðmundsdóttir og áttu þau dótturina Halldóru.
Seinni kona Guðlaugs var Valgerður Guðmundsdóttir og áttu þau dótturina Halldóru.



Útgáfa síðunnar 12. febrúar 2009 kl. 09:04

Guðlaugur Brynjólfsson fæddist 23. júlí árið 1890 og lést 30. desember 1972. Guðlaugur byggði húsið Odda við Vestmannabraut og bjó þar.

Valgerður og Guðlaugur ásamt börnum á fermingardegi Jóhannesar

Fyrri kona Guðlaugs var Halla Jónsdóttir (lést 1918) og áttu þau tvö börn Sveinbjörn og Höllu, en áður átti Halla sonin Jóhannes G. Brynjólfsson (Stefánssonar skósmiðs frá Dölum). Seinni kona Guðlaugs var Valgerður Guðmundsdóttir og áttu þau dótturina Halldóru.

Guðlaugur fór til Vestmannaeyja árið 1910 og byrjaði formennsku árið 1912 á Frí en tók svo við Gnoð árið 1918. Guðlaugur eignaðist hluti í bátum. Eignaðist 1/3 í m/b Glað og síðar allan, til 1939. Lét þá byggja Gísla J.Johnsen. Var formaður með marga báta, til 1930, fyrst með m/b Frí 1912, Gnoð 1918, Örn, Mínervu, Glað 1925-26, Höskuld RE, Gissur hvíta 1928-29 og Glað 1930. Hætti þá sjósókn og vann að útgerð sinni.

Guðlaugur lést á heimili sínu í Kópavogi í lok árs 1972, 82 ára gamall.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum
  • Lára Halla Jóhannesdóttir frá Kirkjulandi