Guðjón Valdason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2012 kl. 11:00 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2012 kl. 11:00 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón á leið til vinnu.
Guðjón og börn hans Marteinn og Ósk

Guðjón Pétur Valdason, Dyrhólum, fæddist 4. október 1893 að Steinum undir Eyjafjöllum og lést 17. ágúst 1989. Guðjón fór 14 ára gamall til Vestmannaeyja með móður sinni og stjúpföður, Elínu Pétursdóttur og Bergi Jónssyni.

Fyrri kona Guðjóns var Guðbjörg Þorsteinsdóttir.
Seinni kona Guðjóns var Margrét Símonardóttir og á meðal barna þeirra var Bergur Elías.

Árið 1923-1924 byrjaði Guðjón formennsku á Garðari I. Eftir það var Guðjón meðal annars með Gottu, Von EA og Kap sem hann var með til ársins 1955 eða í 21 vertíð. Þá kaupir Guðjón Kap II og var með hann 1955-1961 þegar hann hættir formennsku.

Óskar Kárason samdi formannavísu um hann:

Færir Kap á grænan gnið
Guðjón aldinn Valda,
þó að tíðum súðar svið
sargi baldin alda.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Höld Guðjón veit ég Valda
valda með Kap út halda,
djúps, þó að sylgjur súpi
súðin í brima úða.
Gjöld fær úr ægi aldinn,
aldan þó reisi faldinn.
Bindur við kærleik kindur,
knái skipstjórinn, hái.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.