Guðjón Valdason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 14:57 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 14:57 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Valdason, Dyrhólum, fæddist 4. október 1893 að Steinum undir Eyjafjöllum og lést 17. ágúst 1989. Guðjón fór 14 ára gamall til Vestmannaeyja með móður sinni og stjúpföður, Elínu Pétursdóttur og Bergi Jónssyni. Árið 1925 byrjaði Guðjón formennsku á Garðari I. Eftir það var Guðjón meðal annars með Gottu, Von og Kap sem hann var með til ársins 1955 eða í 21 vertíð. Þá kaupir Guðjón Kap II og var með hann til 1960 þegar hann hættir formennsku.

Óskar Kárason samdi formannavísu um hann:

Færir Kap á grænan gnið
Guðjón aldinn Valda,
þó að tíðum súðar svið
sargi baldin alda.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.