„Guðjón Valdason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 4: Lína 4:
'''Guðjón Pétur Valdason''', [[Dyrhólar|Dyrhólum]], fæddist 4. október 1893 að Steinum undir Eyjafjöllum og lést 17. ágúst 1989. Guðjón fór 14 ára gamall til Vestmannaeyja með móður sinni og stjúpföður, [[Elín Pétursdóttir|Elínu Pétursdóttur]] og [[Bergur Jónsson|Bergi Jónssyni]].  

Fyrri kona Guðjóns var [[Guðbjörg Þorsteinsdóttir]]. <br>
Fyrri kona Guðjóns var [[Margrét Símonardóttir]] og á meðal barna þeirra var [[Bergur Elías Guðjónsson|Bergur Elías]]. <br>
Seinni kona Guðjóns var [[Margrét Símonardóttir]] og á meðal barna þeirra var [[Bergur Elías Guðjónsson|Bergur Elías]].
Síðari kona Guðjóns var [[Guðbjörg Þorsteinsdóttir]].

Árið 1923-1924 byrjaði Guðjón formennsku á [[Garðar I|Garðari I]]. Eftir það var Guðjón meðal annars með [[Gotta|Gottu]], [[Vonina EA|Von EA]] og [[Kap]] sem hann var með til ársins 1955 eða í 21 vertíð. Þá kaupir Guðjón [[Kap II]] og var með hann 1955-1961 þegar hann hættir formennsku.

Útgáfa síðunnar 11. júlí 2012 kl. 11:02

Guðjón á leið til vinnu.
Guðjón og börn hans Marteinn og Ósk

Guðjón Pétur Valdason, Dyrhólum, fæddist 4. október 1893 að Steinum undir Eyjafjöllum og lést 17. ágúst 1989. Guðjón fór 14 ára gamall til Vestmannaeyja með móður sinni og stjúpföður, Elínu Pétursdóttur og Bergi Jónssyni.

Fyrri kona Guðjóns var Margrét Símonardóttir og á meðal barna þeirra var Bergur Elías.
Síðari kona Guðjóns var Guðbjörg Þorsteinsdóttir.

Árið 1923-1924 byrjaði Guðjón formennsku á Garðari I. Eftir það var Guðjón meðal annars með Gottu, Von EA og Kap sem hann var með til ársins 1955 eða í 21 vertíð. Þá kaupir Guðjón Kap II og var með hann 1955-1961 þegar hann hættir formennsku.

Óskar Kárason samdi formannavísu um hann:

Færir Kap á grænan gnið
Guðjón aldinn Valda,
þó að tíðum súðar svið
sargi baldin alda.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Höld Guðjón veit ég Valda
valda með Kap út halda,
djúps, þó að sylgjur súpi
súðin í brima úða.
Gjöld fær úr ægi aldinn,
aldan þó reisi faldinn.
Bindur við kærleik kindur,
knái skipstjórinn, hái.

Myndir

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.