Guðjón Tómasson (Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:29 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:29 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Tómasson, Gerði, var fæddur að Saurum í Staðarsveit þann 30. júlí 1897. Þegar Guðjón var 6 ára gamall fór hann til Guðlaugs Jónssonar í Gerði og ólst þar upp. Guðjón hóf sjómennsku ungur á Halkion I en árið 1923 hóf hann formennsku á Ingólfi Arnarsyni og var hann með þann bát til ársins 1930. Eftir það var hann með ýmsa báta, meðal þeirra eru Víkingur, Hilmir, Birgir, Bjarni og Ingólfur II.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.