Guðjón Jónsson (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2013 kl. 17:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2013 kl. 17:40 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón og Guðlaug, fyrri kona hans.

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðjón Jónsson


Guðjón Jónsson var síðasti ábúandi á jörðinni Oddsstöðum. Hann fæddist 27. desember 1874 og lést 25. október 1959, 84 ára gamall. Hann var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Guðlaug Pétursdóttir en seinni kona hans var Guðrún Grímsdóttir. Frá þeim er mikill ættbogi, Oddsstaðaættin, og fjölmargir af þeirri ætt í Eyjum sem og á fastalandinu. Auk bústarfa stundaði Guðjón á Oddsstöðum sjó, var formaður en kunnastur er hann líklega fyrir smíðar sínar, aðallega líkkistusmíðar, en hann smíðaði um árabil líkkistur fyrir flesta þá sem létust í Eyjum. Hann var einnig orðheppinn og kunnur fyrir skjót og eftirminnileg tilsvör og margar sögur tilgreindar af slíku:

  • Páll Kolka var lengi héraðslæknir í Eyjum en flutti héðan. Einhverju sinni eftir það kom hann í heimsókn til Eyja og hitti þá m.a. Guðjón á Oddsstöðum. Spurði Kolka hann hvernig atvinnan, þ.e. líkkistusmíðin, gengi. Og þá svaraði Guðjón: „Ég skal segja þér, Kolka minn, að þetta var aldeilis prýðilegt meðan þú varst hér en hreint ekkert síðan.“
  • Einhverju sinni var Guðjón spurður hvort mannslát hefðu verið tíð í Eyjum að undanförnu. Hann svaraði á þessa leið: „Það dó hér einn ágætismaður og tvær óláns kellíngar.“ Kunnugir sögðu að Guðjón hefði verið fenginn til að smíða utan um manninn en kisturnar fyrir kerlingarnar hefðu verið pantaðar úr Reykjavík.

Frekari umfjöllun

Guðjón Jónsson bóndi og líkkistusmiður á Oddsstöðum, fæddist 27. desember 1874 og lést 25. október 1959.
Foreldrar hans voru Jón Vigfússon bóndi og smiður í Túni og áður bóndi að Krókatúni undir Eyjafjöllum, f. 12. september 1836, d. 1908, og kona hans Guðrún Þórðardóttir frá Húsagarði á Landi, húsfreyja, f. 11. desember 1839, d. 27. ágúst 1890.

Guðjón var tvígiftur:
I. Fyrri kona hans (19. nóvember 1899) var Martea Guðlaug húsfreyja, f. 1. mars 1876, d. 24. júní 1921.
Börn Guðjóns og Guðlaugar voru:
1. Kristófer, f. 27. maí 1900, d. 11. apríl 1981.
2. Pétur Guðjónsson, f. 12. júlí 1902, d. 21. ágúst 1982.
3. Herjólfur, f. 25. desember 1904, d. 31. janúar 1950.
4. Fanný, f. 4. mars 1906, d. 26. nóvember 1994.
5. Jón, f. 2. ágúst 1903, d. 12 febrúar 1967.
6. Njála, f. 22. desember 1909, d. 16. apríl 1997.
7. Guðmundur, f. 28. janúar 1911, d. 18. desember 1969.
8. Ósk, f. 15. júlí 1914, d. 1. febrúar 2006.

II. Síðari kona Guðjóns var Guðrún, f. 10. júní 1888, d. 4. maí 1981.
Börn Guðjóns og Guðrúnar:
9. Ingólfur, f. 7. febrúar 1917, d. 16. nóvember 1998.
10. Guðlaugur, f. 2. júní 1919, d. 2. júní 2008.
11. Árni, f. 12. mars 1923, d. 16. nóvember 2002.
12. Vilborg, f. 22. ágúst 1924.
Fósturbörn Guðrúnar og Guðjóns voru:
13. Hjörleifur Guðnason, f. 5. júní 1925, d. 13. júní 2007, systursonur Guðrúnar.
14. Jóna Halldóra Pétursdóttir sonardóttir Guðjóns, f. 18. ágúst 1933.


Heimildir