„Guðfinna Ólafsdóttir (Fagradal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Guðfinna Ólafsdóttir (Fagradal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:
Þau Erlendur giftu sig 1964, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á [[Vallargata|Vallargötu 6]].

Þau Erlendur giftu sig 1964, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á [[Vallargata|Vallargötu 6]].

Þau Guðfinna ræktuðu spildu í nýja hrauninu frá 1973. Þótti það fagur lundur og sérlegt framtak, gekk undir nafninu Gaujulundur í höfuð henni.

Þau Guðfinna ræktuðu spildu í nýja hrauninu frá 1973. Þótti það fagur lundur og sérlegt framtak, gekk undir nafninu Gaujulundur í höfuð henni.

Erlendur lést 2007 og Guðfinna 2015.
Erlendur lést 2007. Guðfinna dvaldi að síðustu á Hjallatúni í Vík. Hún lést 2015.

Guðfinna var tvígift og voru menn hennar bræður.

Guðfinna var tvígift og voru menn hennar bræður.

Útgáfa síðunnar 13. október 2019 kl. 14:40

Guðfinna Ólafsdóttir.

Guðfinna Kjartanía Ólafsdóttir frá Fagradal í Mýrdal, húsfreyja fæddist þar 16. september 1923 og lést 9. maí 2015 á Hjallatúni í Vík í Mýrdal.
Foreldrar hennar voru Ólafur Jakobsson bóndi, f. 2. mars 1895 í Skammadal í Mýrdal, d. 18. júlí 1985, og kona hans Sigrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 29. október 1894 í Heiðarseli á Síðu, d. 26. febrúar 1997.

Systir Gufinnu í Eyjum var
1. Guðríður Ólafsdóttir húsfreyja á Karlsbergi, Heimagötu 20

Guðfinna var með foreldrum sínum í Fagradal til 1948, er hún leitaði til Eyja, bjó þar 1948-1949, vann á Sjúkrahúsinu.
Hún giftist Inga Gunnari 1948. Þau eignuðust tvö börn. Þau fluttust að Fagradal og bjuggu þar 1949-1950, en þá lést Ingi Gunnar úr berklum.
Frá 1953 til 1960 var Guðfinna ráðskona hjá Jakobi bróður sínum í Fagradal. Haustið 1960 fluttist hún ásamt Sigrúnu Ósk og Inga til Víkur í Mýrdal og þaðan til Vestmannaeyja með Erlendi 1964.
Þau Erlendur giftu sig 1964, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Vallargötu 6.
Þau Guðfinna ræktuðu spildu í nýja hrauninu frá 1973. Þótti það fagur lundur og sérlegt framtak, gekk undir nafninu Gaujulundur í höfuð henni.
Erlendur lést 2007. Guðfinna dvaldi að síðustu á Hjallatúni í Vík. Hún lést 2015.

Guðfinna var tvígift og voru menn hennar bræður.
I. Fyrri maður hennar, (16. september 1948), var Ingi Gunnar Stefánsson bóndi, f. 7. ágúst 1918, d. 4. mars 1950.
Börn þeirra:
1. Sigrún Ósk Ingadóttir, f. 28. nóvember 1948. Maður hennar Guðmundur Sigurðsson.
2. Ingi Stefán Ingason, f. 15. maí 1950. Kona hans Katrín Þ. Andrésdóttir.
II. Síðari maður Guðfinnu, (17. maí 1964), var Erlendur Stefánsson netagerðarmeistari, f. 20. febrúar 1920, d. 12. ágúst 2007.
Börn þeirra:
3. Stefán Erlendsson netagerðarmaður, f. 5. september 1965, d. 31. desember 2000.
4. Ólafur Erlendsson, f. 5. september 1965. Kona hans Gunnhildur V. Kjartansdóttir.
5. Kjartan Erlendsson, f. 23. janúar 1967. Kona hans Rikke Kiil Erlendsson.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Íslendingabók.is.
• Manntöl.
• Morgunblaðið 16. maí 2015. Minning.
• Prestþjónustubækur.
• Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.