„Guðbjörg Halldóra Einarsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Guðbjörg Halldóra Einarsdóttir''' húsfreyja á Hólagötu 44 fæddist 8. júní 1926 í Saurbæ á Langanesströnd í Skeggjastaðahreppi í N-Múlasýslu.<br> F...)
 
m (Verndaði „Guðbjörg Halldóra Einarsdóttir“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 14. nóvember 2015 kl. 21:09

Guðbjörg Halldóra Einarsdóttir húsfreyja á Hólagötu 44 fæddist 8. júní 1926 í Saurbæ á Langanesströnd í Skeggjastaðahreppi í N-Múlasýslu.
Foreldrar hennar voru Einar Ófeigur Hjartarson bóndi, f. 11. maí 1896, d. 11. apríl 1963, og kona hans Stefanía Jónsdóttir húsfreyja, f. 23. mars 1891, d. 12. maí 1960.

Guðbjörg fluttist til Eyja 1947. Þau Gústaf bjuggu á Heiðarvegi 13 1949, eignuðust Stefaníu í lok ársins, giftu sig 1950.
Þau byggðu húsið að Hólagötu 44 og bjuggu þar, uns þau fluttust á Selfoss á 7. áratugnum.
Á Selfossi bjuggu þau til 2001, er þau fluttust til Akureyrar og búa þar.

Maður Guðbjargar, (30. desember 1950), er Gústaf Sigjónsson sjómaður, skipstjóri, bifreiðastjóri, f. 22. janúar 1927.
Barn þeirra er
1. Stefanía Gústafsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 26. desember 1949. Maður hennar er Úlfar Ragnarsson trésmiður.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.