Guðbjörg Þorsteinsdóttir (Fögruvöllum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. febrúar 2015 kl. 21:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. febrúar 2015 kl. 21:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðbjörg Þorsteinsdóttir''' húsfreyja á Fögruvöllum fæddist 1794 í Suðursveit, A-Skaft. og lést 28. nóvember 1844.<br> Hún var líklega 16 ára vin...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Þorsteinsdóttir húsfreyja á Fögruvöllum fæddist 1794 í Suðursveit, A-Skaft. og lést 28. nóvember 1844.

Hún var líklega 16 ára vinnukona á Kálfafelli í Suðursveit 1801, ekkja á Leiðvelli í Meðallandi 1816, var vinnukona í Mörtungu á Síðu 1818-1820, í Hörgsdal þar 1820-1822, á Breiðabólsstað þar 1822-1923, í Eystri-Tungu í Landbroti 1823-1824, fór þá að Skurðbæ í Meðallandi, en kemur ekki fram í bókum þar.
Guðbjörg og Guðlaugur fluttust til Eyja 1831, „tómthúsfólk“... „af Landi“. Þau voru skráð í Fagurhól á mt. 1835, en fyrr og síðar á Fögruvöllum.

I. Ókunnur maður látinn fyrir 1816.

II. Maður hennar, (24. júní 1832), var Guðlaugur Guðlaugsson tómthúsmaður og sjómaður á Fögruvöllum, f. 1788, d. 30. september 1848.
Þau voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.