Grímur Marinó Steindórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 12:10 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 12:10 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Leiðrétti og bætti við texta)
Fara í flakk Fara í leit

Grímur Marinó Steindórsson fæddist á Vestmannabraut 76 árið 1933 og ólst hann upp í Vestmannaeyjum.

Grímur er útlærður járniðnaðarmaður og vann sem slíkur um árabil. Hann lagði stund á málaralist og höggmyndagerð í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Meðal þekktra listamanna sem voru með honum í Myndlistarskóla Reykjavíkur eru Jón Gunnar Árnason og Ragnar Kjartansson.

Listaverk Gríms Marinós eru víða um land, meðal annars Súlurnar á Hörgaeyrargarði hér í Eyjum.

Grímur Marinó hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir listaverk sín, m.a. hlaut hann 1. verðlaun í samkeppni vegna leiðtogafundar Gorbatsjovs og Reagan í Höfða árið 1986. Það listaverk stendur við Flugstöðina í Eyjum. Þá hlaut hann 2. verðlaun Listahátíðar 1987.

Grímur hefur búið í Kópavogi um árabil og hefur meðal annars verið útnefndur Bæjarlistamaður Kópavogs.