Grétar Þorgilsson (Grund)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 10:23 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 10:23 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Bætti við flokki)
Fara í flakk Fara í leit

Grétar Þorgilsson fæddist árið 1926 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Þorgils Þorgilsson og Lára Kristmundsdóttir. Grétar var í miðjunni á fimm barna systkinahópi. Kona Grétars er Þórunn Pálsdóttir og eiga þau fimm börn.

Þegar Grétar var 16 ára gamall valdi hann að fara á sjó á Erlingi sem Sighvatur Bjarnason var með. Hann var eftir það meira og minna á sjó langt fram eftir ævinni.

Grétar er góður söngmaður og þykir gaman að taka lagið.