Gróa Björg Sigurðardóttir (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. janúar 2016 kl. 22:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. janúar 2016 kl. 22:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Gróa Björg Sigurðardóttir''' vinnukona frá Búastöðum fæddist 26. maí 1865 og lést 12. júlí 1882. <br> Foreldrar hennar voru [[Sigurður Torfason (hrepp...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gróa Björg Sigurðardóttir vinnukona frá Búastöðum fæddist 26. maí 1865 og lést 12. júlí 1882.
Foreldrar hennar voru Sigurður Torfason sjávarbóndi og hreppstjóri á Búastöðum, f. 14. febrúar 1822, d. 18. apríl 1870, og kona hans Guðríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1829, d. 15. ágúst 1867.

Móðir Gróu Bjargar lést, er hún var tveggja ára og föður sinni missti hún 5 ára.
Hún var 5 ára niðursetningur í Kornhól 1870, 10 ára hjá Gísla Bjarnasen og Maríu í Gíslahúsi (,,annars nafnlaust hús“) 1875 og var vinnukona í Garðinum 1880.
Hún lést á Vilborgarstöðum 1882 úr ,,krampa og mislingum“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.