Grímur Marinó Steindórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2012 kl. 08:15 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2012 kl. 08:15 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Grímur Marinó

Grímur Marinó Steindórsson fæddist á Vestmannabraut 76 árið 1933 og ólst upp í Vestmannaeyjum.

Grímur er útlærður járniðnaðarmaður og vann sem slíkur um árabil. Hann lagði stund á málaralist og höggmyndagerð í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Meðal þekktra listamanna sem voru með honum í Myndlistarskóla Reykjavíkur eru Jón Gunnar Árnason og Ragnar Kjartansson.

Listaverk Gríms Marinós eru víða um land, meðal annars Súlurnar á Hörgaeyrargarði hér í Eyjum.

Grímur Marinó hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir listaverk sín, m.a. hlaut hann fyrstu verðlaun í samkeppni vegna leiðtogafundar Gorbatsjovs og Reagan í Höfða árið 1986. Það listaverk stendur við Flugstöðina í Eyjum. Þá hlaut hann önnur verðlaun Listahátíðar 1987.

Grímur hefur búið í Kópavogi um árabil og hefur meðal annars verið útnefndur Bæjarlistamaður Kópavogs.