Golfklúbbur Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 09:57 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 09:57 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Iðandi mannlíf á golfvellinum. Grínið á 18. holu og Golfskálinn.

Tildrög þess að hafið var að leika golf í Vestmannaeyjum má rekja til þess er Magnús Magnússon, skipstjóri frá Boston, USA, var á ferð í Eyjum sumarið 1937. Þá hafði hann kennt nokkrum mönnum undirstöðuatriðin í golfíþróttinni og reglur leiksins. Í framhaldinu ákváðu nokkrir af þeim, sem fallið höfðu fyrir íþróttinni, þeir Þórhallur Gunnlaugsson, Axel Halldórsson, Ólafur Halldórsson, Einar Guttormsson, Ágúst Bjarnason og Georg Gíslason, ásamt fleirum að boða til stofnfundar Golfklúbbs Vestmannaeyja.

Fundurinn var haldinn þann 4. des. 1938 og voru 20 mættir. Í bráðabirgðastjórn og laganefnd voru kosnir Þórhallur Gunnlaugsson, formaður, Georg Gíslason, ritari og Ólafur Halldórsson, gjaldkeri. Framhaldsstofnfundur var haldinn 11. desember og voru þessir sömu menn kosnir í fyrstu stjórnina ásamt meðstjórnendunum Einari Guttormssyni og Viggó Björnssyni.

Stofnendur Golfklúbbs Vestmannaeyja:

Golf leikið í stórbrotnu umhverfi. Smáeyjarnar Hani, Hæna og Hrauney í bakgrunni.
  • Axel Halldórsson
  • Ágúst Bjarnason
  • Einar Guttormsson
  • Einar Sigurðsson
  • Ella Halldórsdóttir
  • Fanney Jónsdóttir
  • Georg Gíslason
  • Gissur Erlingsson
  • Guðlaugur Gíslason
  • Guðlaugur Stefánsson
  • Guðfinna Kristjánsdóttir
  • Hafsteinn Snorrason
  • Haraldur Eiríksson
  • Hinrik Jónsson
  • Hjálmar Eiríksson
  • Ingibjörg Ólafsdóttir
  • Ingi Kristmanns
  • Jóhann Bjarnasen
  • Jóhannes Sigfússon
  • Karl Kristmanns
  • Karl Sigurhansson
  • Lárus Ársælsson
  • Leifur Sigfússon
  • Magnús Bergsson
  • Marinó Jónsson
  • Ólafur Halldórsson
  • Páll Jónsson
  • Rannveig Vilhjálmsdóttir
  • Carl Rosinkjær
  • Sigurbjörg Magnúsdóttir
  • Sigurður Ólason
  • Tómas Guðjónsson
  • Tryggvi Ólafsson
  • Unnur Magnúsdóttir
  • Viggó Björnsson
  • Þórhallur Gunnlaugsson