„Gjábakki-vestri“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Húsið '''Gjábakki-vestri''' stóð við [[Bakkastígur|Bakkastíg]] 8, norður af [[Brimnes]]i. Það fór undir [[heimaeyjargosið|hraun]] 1973.  
Húsið '''Gjábakki-vestri''' stóð við [[Bakkastígur|Bakkastíg]] 17, vestur af [[Brimnes]]i. Það fór undir [[heimaeyjargosið|hraun]] 1973. Á ofanverðri 19. öld bjó á Gjábakka-vestri [[Ingimundur Jónsson]], faðir [[Kristján Ingimundarson|Kristjáns]] í [[Klöpp]] og [[Jón Ingimundarson|Jóns]] í [[Mandalur|Mandal]]. Ingimundur sat jörðina í rúmlega hálfa öld og byggði það hús sem fór undir hraunið. Þarna bjó lengi [[Gunnlaugur Sigurðsson]] formaður ásamt konu sinni [[Elísabet Arnoddsdóttir frá Gjábakka|Elísabetu Arnoddsdóttur]] og stórum barnahópi þeirra en níu þeirra komust til fullorðinsára. Mikill ættbogi er frá þeim Gunnlaugi og Elísabetu.
 
Þegar gaus, 1973, bjuggu á Gjábakka-vestri systkinin [[Sigurbjörg Gunnlaugsdóttir frá Gjábakka|Sigurbjörg]] og [[Jón Gunnlaugsson frá Gjábakka|Jón]] Gunnlaugsbörn.


[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]

Útgáfa síðunnar 22. janúar 2006 kl. 14:50

Húsið Gjábakki-vestri stóð við Bakkastíg 17, vestur af Brimnesi. Það fór undir hraun 1973. Á ofanverðri 19. öld bjó á Gjábakka-vestri Ingimundur Jónsson, faðir Kristjáns í Klöpp og Jóns í Mandal. Ingimundur sat jörðina í rúmlega hálfa öld og byggði það hús sem fór undir hraunið. Þarna bjó lengi Gunnlaugur Sigurðsson formaður ásamt konu sinni Elísabetu Arnoddsdóttur og stórum barnahópi þeirra en níu þeirra komust til fullorðinsára. Mikill ættbogi er frá þeim Gunnlaugi og Elísabetu.

Þegar gaus, 1973, bjuggu á Gjábakka-vestri systkinin Sigurbjörg og Jón Gunnlaugsbörn.