„Ginklofi“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:

== Landlæknir kemur til Vestmannaeyja ==

Íslendingar fengu sinn fyrsta landlækni árið 1760 en á næstu árum voru stofnuð embætti fjórðungslækna þannig að um 1800 voru starfandi fimm læknar auk landlæknis. Heilbrigðisyfirvöldum í Kaupmannahöfn bárust fregnir um að ungbarnadauði væri óvanalega mikill í Eyjum skömmu fyrir aldamótin 1800 en þetta hafði verið lengi vitað hérlendis án þess að nokkuð væri að gert. Árið 1804 var Tómas Klog skipaður landlæknir en hann var fyrsti Daninn til að gegna læknisembætti á Íslandi og líklega var skipun hans tilkomin til að ná betri tökum á stjórn heilbrigðismála. Íslenskir embættismenn gerðu ekkert í málinu þrátt fyrir eftirrekstur og að lokum fór landlæknir til Vestmannaeyja árið 1810 og skrifaði skýrslu um málið, Indberettninger om Börnesygdommen Ginklofi. Þar lýsir hann ginklofatilfelli en talið var að sjúkdómurinn hefði verið valdur að flestum dauðsföllum.

Lína 10: Lína 9:

== Læknisembætti stofnað í Vestmannaeyjum ==

Íbúar Vestmannaeyja sendu beiðni til yfirvalda árið 1820 um að þeim væri sendur læknir og var íslenskur læknir, [[Ólafur Thorarensen]], sendur. Hann vildi hins vegar ekki setjast að í Vestmannaeyjum en skrifaði skýrslu til yfirvalda um hvað bæri að gera til að bæta ástandið. Tillögur hans voru á sömu nótum og tillögur Klogs en sem fyrr var ekki farið eftir þeim. Landlæknir Jón Thorstensen og stiftamtmaður Hoppe gerðu þá tillögu til yfirvalda um að stofnað yrði sérstakt læknisembætti í Vestmannaeyjum og var það samþykkt af konungi 6. júní 1827. Þar sem erfiðlega gekk að fá lækni var ákveðið að ef danskur læknir fengist til starfans og sæti í sex ár fengi hann embætti í Danmörku að því loknu. Fyrsti héraðslæknirinn, [[Carl Ferdinand Lund]], kom til starfa árið 1828 en síðan komu þeir hver af öðrum, [[Carl Hans Ulrich Balbroe]], [[Andreas Steener Iversen Haaland]], [[August Ferdinand Schneider]] og [[Philip Theodor Davidsen]], sem lést í embætti árið 1860 eins og Lund hafði gert tæpum 30 árum fyrr. Ekkert hafði breyst í Vestmannaeyjum þrátt fyrir komu læknanna en þeir gerðu sér betur grein fyrir vandamálinu og voru með tillögur til úrbóta.  

== Schleisner og ginklofinn ==
== Schleisner og ginklofinn ==
Árið 1847 var ákveðið að senda [[Peter Anton Schleisner]] til Vestmannaeyja og þá var staðan þannig að milli 60 og 80% allra barna sem fæddust lifandi í Vestmannaeyjum dóu úr ginklofa en meðaltalið fyrir Ísland var um 30% og Danmörku milli 15 og 20%. Hvers vegna Schleisner varð fyrir valinu er ekki vitað en hann hafði skrifað ritgerð um barnsfarasótt árið 1846 og kannski hefur það haft áhrif á valið. Þegar Schleisner kemur til Vestmannaeyja í byrjun júlí 1847 hefst hann þegar handa við að koma upp sérstakri fæðingarstofu og tók hún til starfa í september sama ár. En hvers vegna fæðingarstofu? Bolbroe læknir sem starfaði í Eyjum 1832-1839 hafði áttað sig á því að þeir nýburar sem hann tók inn á heimili sitt fengu ekki ginklofa og eftirmaður hans, Haalland, sem var í Eyjum 1840-1845 taldi nauðsynlegt að stofna sérstakt fæðingarheimili. Því var niðurstaðan sú að fæðingarstofa væri nauðsynleg. Illa gekk að fá konur til að koma á fæðingarstofuna og fæða þar en öll börn sem fæddust voru flutt þangað til meðferðar. Af 23 börnum sem fæddust frá september 1847 til júlí árið 1848 létust fimm, þar af þrjú úr ginklofa, eða 13% en undangengna tvo áratugi hafði dánartalan verið um 60% á sama árstíma.

== Leiðir til úrbóta ==
== Leiðir til úrbóta ==
Schleisner beindi athyglinni fyrst og fremst að umbúnaði naflastrengsinsog bar á hann sérstaka olíu, balsamum copaiba, þar til hann féll af. Á fæðingarstofunni voru viðhafðar strangar kröfur um hreinlæti og um mataræði en hvort tveggja líkaði konum illa. Brjóstagjöf var viðhöfð eftir því sem hægt var en þar sem einungis fáar konur voru með börnum á stofunni var erfitt um vik. Þegar börnin fóru heim fengu þau með sér pela, barnaföt og þvottasvamp og mæðrum voru lagðar lífsreglurnar um meðferð ungbarna eins þá var tíðkanlegt. Með þessu var tekið á þeim þáttum sem ítrekað hafði verið bent á sem hugsanlegan orsakavald en það var umbúnaður naflastrengs, ömurlegar umhverfisaðstæður, meðal annars þröngbýli og fúlt vatn, og skortur á brjóstamjólk.  

== Fæðingarstofa sett á laggirnar ==
== Fæðingarstofa sett á laggirnar ==
Til þess að finna nákvæmlega hvað ylli ginklofanum rannsakaði Schleisner hvaða vatnsból var notað, hvað konur borðuðu um meðgönguna, hver næring nýbura væri (móðurmjólk, kúamjólk eða annað), hvort fuglafiður væri í sængum og almennt heilsufar heimilisfólks og bar þetta saman við fjölda fæddra og látinna barna á ginklofatímabilinu, þ.e. fimmta til tólfta dags. Ekki reyndist vera fylgni þarna á milli, hvorki við eitt né fleiri atriði. Þegar Schleisner reynir að átta sig á því hvað það sé sem valdi sjúkdómnum finnur hann ekki altæka lausn. Hann vitnar til erlendra rannsókna en menn höfðu ekki komist að hinu sanna í þessu máli þótt ýmsar hugmyndir væru á lofti. ''„Flestir virðast þó geta sameinast um að hér sé um að ræða heilbrigðisfræðilegan grundvöll sem færir þennan sjúkdóm í flokk með skyrbjúg og líkþrá sem tilheyra lágu menningarstigi...Þó má af minni reynslu sjá að nokkuð er hægt að gera til fyrirbyggingar sjúkdómsins, já og það ekki svo lítið. Það er fæðingarstofan sem leysir vandann.“''

Lína 29: Lína 23:

== Sigrast á vandanum ==
== Sigrast á vandanum ==
Þegar Schleisner fór aftur til Danmerkur var fæðingarstofan aflögð vegna áhuga- og skeytingarleysis heimamanna og jafnvel þótt héraðslæknirinn Davidsen gerði tillögu um að breyta henni í spítala sem var vel tekið af dönskum yfirvöldum þá sýndu innlendir aðilar því engan áhuga. Notkun olíunnar hélt hins vegar áfram og dauðsföll af völdum ginklofa heyrðu nær sögunni til. Það hefði þurft gagngerar breytingar á venjum og lifnaðarháttum fólks til að koma í veg fyrir að smit bærist úr umhverfinu en við slíku var ekki að búast á þessum tíma. En hvernig smituðust börnin? Niðurstaða Baldur Johnsens sem kannaði sögu ginklofans ítarlega er; ''„Af öllu þessu...verður ekki ráðið í sérstakan smitbera öðrum fremur meðal dýra en vafalaust tengist útbreiðsla veikinnar atvinnuháttum og ýmsum búskaparháttum þar sem mold getur borist inn í hús beint eða óbeint. Í mold og saur verður að sækja smitefnið þar sem það lifði í einhvers konar dvalarástandi. Óþrifaleg umgengni og þrengsli gefa góðan hindrunarlausan farveg fyrir smitefni. Eitt er víst, þar sem sóttkveikjan er alls staðar nálæg mun hún hafa þrifist vel í hlýjum hreiðrum og holum bjargfugla í feitum jarðvegi fuglabyggðarinnar, engu að síður en í fjósum og öðrum skýlum búpenings.“'' Þannig er hún til staðar í umhverfinu og berst í naflann með naflabindunum eða vatninu sem börnin eru böðuð upp úr. Schleisner áttaði sig ekki nákvæmlega á því hvað olli ginklofanum en með því að útiloka umhverfisþættina inni á stofnun var hægt að sigrast á vandanum. Miasma-kenningin, þ.e. að sjúkdómar smituðust með eitruðum lofttegundum, var enn ráðandi og formlega heldur hann tryggð við hana en gamlar sögur úr Vestmannaeyjum segja að Schleisner hafi talað um að eitthvert smitefni gæti borist í fólk frá lundum.

943

breytingar

Leiðsagnarval