Geir Jón Þórisson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 10:53 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 10:53 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Geir Jón Þórisson

Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í Reykjavík fæddist 24. apríl 1952. Foreldrar hans eru Þórir Geirmundsson og Kristrún Skúladóttir. Eiginkona Geirs Jóns er Guðrún Ingveldur Traustadóttir, dóttir Trausta Guðjónssonar frá Skaftafelli. Börn þeirra eru Þórir Rúnar (f. 1978), Narfi Ísak (f.1981), Símon Geir (f. 1984) og Ragnheiður Lind (f. 1987).

Geir Jón starfaði í lögreglunni hér í Eyjum um árabil og naut hylli hvers manns. Hann vann einnig um tíma sem verslunarstjóri í Virkni og Magnabúð. Auk þess söng hann í kirkjukór Landakirkju og tók þátt í starfi Hvítasunnukirkjunnar.

Fjölskyldan bjó að Stóragerði 7. Þau voru fyrstu eigendur þess húss en þau fluttu inn á níunda áratugnum. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1991 og búa í Grafarvogi.