Garðshorn við Heimagötu

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. apríl 2013 kl. 13:42 eftir Þórunn (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. apríl 2013 kl. 13:42 eftir Þórunn (spjall | framlög) (Bætt við byggingarári húss)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Garðshorn stóð við Heimagötu 40 fór undir hraun í Heimaeyjargosinu 1973.

Húsið byggði Haraldur Jónasson og fjölskylda árið 1927, en húsið var stækkað um hæð á árunum 1940-1942.

Þegar gaus bjuggu þar hjónin Ásta Haraldsdóttir og Bjarni Jónsson. Einnig bjó í húsinu Ágústa Friðsteinsdóttir.


Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.
  • Byggðin undir hrauni, verkefni haust 2012.