Gísli J. Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2005 kl. 12:40 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2005 kl. 12:40 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Jóhannsson Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum þann 10. mars 1881. Foreldrar hans voru Jóhann Jörgen kaupmaður og útvegsbóndi og Anna Sigríður Árnadóttir frá Hofi í Öræfum. Eiginkona Gísla var frú Ásdís Gísladóttir frá Hól. Gísli lést 6. september 1965.

Gísli hóf ungur að aldri verslunarrekstur, aðeins 17 ára gamall. Með verslun sinni og útgerðarekstri náði hann að koma niður Brydesverzlunina og á aðeins 10 árum að bæla niður dönsku einokunina, sem hafði verið í margar mannsaldir. Einnig var honum falin ýmis ábyrgðarstörf, svo sem skipaafgreiðslu og póstafgreiðslu.

Gísli átti einnig sinn sess í útgerðarsögu Vestmannaeyja. Hann lét smíða og flytja til Eyja fyrsta vélknúna fiskibátinn árið 1904 og árið 1928 lét hann smíða skipið Heimaey með loftskeytatækjum og var hann fyrstur allra vélbáta, á Íslandi, með þannig tækjum. Árið 1956 gáfu hann og kona hans, frú Anna Ólafsdóttir, Slysavarnafélagi Íslands björgunarbát með fullkomnum útbúnaði. Einnig var Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum til húsa í Breiðablik, sem hann reisti og bjó í.