Gísli Erlingsson (húsasmíðameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. október 2021 kl. 11:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. október 2021 kl. 11:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Gísli Erlingsson''' húsasmíðameistari fæddist 31. október 1953 á Brekastíg 24.<br> Foreldrar hans voru Erling Adólf Ágústsson rafvirki, tónlistarma...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Erlingsson húsasmíðameistari fæddist 31. október 1953 á Brekastíg 24.
Foreldrar hans voru Erling Adólf Ágústsson rafvirki, tónlistarmaður, f. 9. ágúst 1930 í Nýhöfn, d. 8. janúar 1999, og kona hans Ingibjörg Kristín Gísladóttir frá Hvanneyri, húsfreyja, fiskverkakona, verslunarmaður, f. 11. apríl 1935, d. 4. janúar 2021.

Börn Ingibjargar og Erlings:
1. Gísli Erlingsson húsasmíðameistari, f. 31. október 1953 að Brekastíg 24. Kona hans Þuríður Bernódusdóttir.
2. Ágúst Erlingsson í Kaupmannahöfn, slökkviliðsmaður, f. 4. október 1954 í Eyjum, d. 25. september 2018. Kona hans Gitte Sörensen.
3. Sigurborg Erlingsdóttir býr í Indiana í Bandaríkjunum, skrifstofumaður, f. 4. mars 1958 í Eyjum. Maður hennar Robert Violette.

Gísli var með foreldrum sínum í æsku, á Brekastíg 24 og Brekastíg 24b.
Hann flutti með þeim til Reykjavíkur 1962 og í Njarðvík 1963.
Hann varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Keflavík 1970, lauk Iðnskólanum í Eyjum og fékk sveinsbréf 1986, fékk meistararéttindi 1989.
Gísli sneri til Eyja 16 ára, var matsveinn og bátsmaður til sjós, m.a. á Kap VE, Sighvati Bjarnasyni VE, en lengst á Andvara VE. Hann hefur unnið við iðn sína, í Eyjum, Danmörku og Reykjavík.
Hann vinnur nú hjá Hafnareyri, sem er dótturfyrirtæki Vinnslustöðvarinnar.
Þau Þuríður giftu sig 1978, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Gámi við Faxastíg 54 1975-1978, þá í Þinghól við Kirkjuveg 19 1978-1990, síðan á Helgafellsbraut 21 í 11 ár, þá í Danmörku 2001-2003, en síðan í Laufrima 26 í Grafarvogi, uns þau fluttu til Eyja 8. september 2020. Þau búa á Túngötu 17 í Eyjum.

I. Kona Gísla, (24. júní 1978), er Þuríður Bernódusdóttir frá Borgarhól, húsfreyja, fiskverkakona, þjónustufulltrúi, f. 13. nóvember 1954.
Börn þeirra:
1. Magnús Gíslason forritari í Eyjum, f. 6. nóvember 1975. Fyrrum kona hans er Fjóla Finnbogadóttir. Sambúðarkona hans Eva María Jónsdóttir.
2. Jón Helgi Gíslason, f. 11. mars 1980, málarameistari í Eyjum. Kona hans er Guðrún María Þorsteinsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.