Gísli Bjarnason (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:35 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:35 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Bjarnason, 1713 til 1734. Hann var fæddur að Grund í Skorradal. Foreldrar Bjarni Lögréttumaður Sigurðsson í Heynesi og kona hans Helga Gísladóttir frá Skarði á Landi, Bjarnasonar. Varð stúdent frá Skálholtsskóla 1706, var síðan þrjú ár í þjónustu Jóns biskups Vídalíns, vígðist 1710 krikjuprestur í Skálholti, gegndi konrektorsembætti þar til 1711, en fékk veitingu fyrir Ofanleiti 1713 og hélt því til 1734, er hann tók við Melum. Hann var talinn vel metinn maður, hraustur og harðger og vel efnum búinn, en hvorki er getið konu hans né barna. Sennilega ókvæntur.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.