„Gísli Andrésson í Görðum við Kirkjubæ“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 17: Lína 17:
III. kona, (13. desember 1835), [[Þórelfur Kortsdóttir (Görðum við Kirkjubæ)|Þórelfur Kortsdóttir]], f. 9. janúar 1787, d. 15. febrúar 1869.

III. kona, (13. desember 1835), [[Þórelfur Kortsdóttir (Görðum við Kirkjubæ)|Þórelfur Kortsdóttir]], f. 9. janúar 1787, d. 15. febrúar 1869.

Börn þeirra Gísla Andréssonar og Þórelfar Kortsdóttur:

Börn þeirra Gísla Andréssonar og Þórelfar Kortsdóttur:

8. [[Jón Gíslason (Görðum við Kirkjubæ)|Jón]], f. 10. desember 1836, d. 15. desember 1837.

8. [[Jón Gíslason (Görðum við Kirkjubæ)|Jón]], f. 10. desember 1836, d. 15. desember 1836.

9. [[Kort Gíslason (Görðum við Kirkjubæ)|Kort]], f. 3. febrúar 1838, d. 11. s. mán.

9. [[Kort Gíslason (Görðum við Kirkjubæ)|Kort]], f. 3. febrúar 1838, d. 11. s. mán.

10. [[Valdís Gísladóttir (Görðum við Kirkjubæ)|Valdís]], f. 24. júní 1839, d. 3. júlí s. ár.

10. [[Valdís Gísladóttir (Görðum við Kirkjubæ)|Valdís]], f. 24. júní 1839, d. 3. júlí s. ár.

Útgáfa síðunnar 29. desember 2013 kl. 19:21

Gísli Andrésson sjómaður var fæddur 16. maí 1791 á Bakkavelli í Hvolhreppi, og lést 23. desember 1855 í Görðum á Kirkjubæ í Eyjum.
Faðir hans var Andrés bóndi í Vallarhjáleigu í Breiðabólsstaðarsókn, Rang., f. um 1770, d. 8. desember 1834, Jónsson og kona Andrésar, Neríður Andrésdóttir ráðskona á Velli, f. 1724, d. 2. nóvember 1803. Móðir Andrésar var Ingibjörg Þorsteinsdóttir, f. um 1770, d. 16. apríl 1824.
Gísli fluttist að Miðhúsum frá Velli 1824.
Gísli Andrésson var þrígiftur:
I. Kona, (11. júní 1820), Sigríður Guðmundsdóttir, f. 2. maí 1793, d. 30. október 1833.
Börn:
1. Andrés vinnumaður á Ofanleiti, f. 16. október 1820, d. 6. september 1842, ókvæntur.
2. Margrét Gísladóttir¹) húsfreyja í Spanish Fork í Utah, f. 20. nóvember 1822, d. í Spanish Fork 14. júní 1914, kona Samúels Bjarnasonar.
3. Vilborg, f. 6. september 1825. Hún mun hafa dáið ung.
4. Hannes þurrabúðarmaður í Grímshjalli, f. í september 1828, d. 4. ágúst 1900, kvæntur Guðríði Guðmundsdóttur. Þau skildu.
5. Guðmundur, f. 22. júlí 1830, d. 30. s. mán.
6. Snjófríður, f. 29. ágúst 1831, d. 5. september s. ár.
7. Sigríður, f. 11. mars 1833, d. 22. mars s. ár.

II. kona, (13. nóvember 1834), Valdís Björnsdóttir, f. 21. apríl 1799, d. 31. mars 1835. Þau Gísli og Valdís voru barnlaus.

III. kona, (13. desember 1835), Þórelfur Kortsdóttir, f. 9. janúar 1787, d. 15. febrúar 1869.
Börn þeirra Gísla Andréssonar og Þórelfar Kortsdóttur:
8. Jón, f. 10. desember 1836, d. 15. desember 1836.
9. Kort, f. 3. febrúar 1838, d. 11. s. mán.
10. Valdís, f. 24. júní 1839, d. 3. júlí s. ár.
11. Þorgerður Gísladóttir, f. 16. ágúst 1840, d. 8. ágúst 1919, fyrri kona (skildu) Sigurðar Sigurfinnssonar hreppstjóra. Bjó síðan í Skel.
Gísli bjó í Götu í Holtum 1821-1823, í þurrabúðinni Kokkhúsi í Eyjum um skeið, en að lokum í Görðum við Kirkjubæ. Þar lést hann.
¹) Samkv. Holtamannabók var Margrét Gísladóttir dóttir fyrstu konu Gísla, Sigríðar Guðmundsdóttur, en ekki dóttir Þórelfar Kortsdóttur eins og sumsstaðar stendur.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Holtamannabók I–Holtahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2006.
• Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
• Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja H.F. 1946.
• Manntöl.
• Familysearch.org