„Friðrikka Ingibjörg Einarsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Friðrikka Ingibjörg Einarsdóttir''' húsfreyja fæddist 22. febrúar 1890 á Seyðisfirði og lést 12. mars 1979.<br> Foreldrar hennar voru [[Einar Guðmundsson trésmiður|Ein...)
 
m (Verndaði „Friðrikka Ingibjörg Einarsdóttir“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 5. júlí 2015 kl. 14:35

Friðrikka Ingibjörg Einarsdóttir húsfreyja fæddist 22. febrúar 1890 á Seyðisfirði og lést 12. mars 1979.
Foreldrar hennar voru Einar Guðmundsson trésmiður, sjómaður, síðar útgerðarmaður á Seyðisfirði, að síðustu hjá dóttur sinni í Eyjum, f. 22. ágúst 1855, d. 25. febrúar 1935, og kona hans Oddný Pétursdóttir húsfreyja, f. 24. janúar 1858, d. 18. október 1913.

Friðrikka Ingibjörg var með foreldrum sínum á Þórarinsstaðastekk í Seyðisfirði 1890 og 1901.
Hún fluttist til Eyja 1908, giftist Vilhjálmi Ágústi 1909. Þau eignuðust tvö börn sem dóu ung, og Vilhjálmur Ágúst dó 1913.
Friðrikka Ingibjörg giftist Runólfi Sigfússyni frá Stóru-Breiðavík í Reyðarfirði 1915. Þau bjuggu á Seyðisfirði 1920 með 3 börn sín, fluttust til Eyja 1924 með 4 börn og Einar föður Friðrikku Ingibjargar.
Þau Runólfur bjuggu í Breiðavík (Kirkjuvegi 82) 1926, og enn 1930 með 6 börn. Einar faðir hennar dvaldi hjá þeim.
Runólfur lést 1936. Friðrikka bjó í Eyjum til goss, en fluttist þá til Reykjavíkur, bjó með Oddnýju dóttur sinni og lést 1979.

Friðrikka Ingibjörg var tvígift.
I. Fyrri maður hennar var Vilhjálmur Ágúst Scheving útgerðarmaður og bátsformaður, f. 5. ágúst 1888, d. 29. mars 1913.
Börn þeirra voru:
1. Friðrik Vigfús Ágústsson, f. 26. mars 1910, d. 17. júlí 1912.
2. Haraldur Ágústsson, f. 14. janúar 1912, d. 29. september 1914.

II. Síðari maður Friðrikku Ingibjargar var Runólfur Sigfússon bátsformaður og vélstjóri, f. 16. febrúar 1893 í Stóru-Breiðavík í Reyðarfirði, d. 29. september 1936. Börn þeirra hér:
2. Oddný Hansína Runólfsdóttir matráðskona, f. 21. júní 1916, síðast í Reykjavík, d. 14. apríl 2005.
3. Einar Runólfsson vélstjóri, skipstjóri, f. 25. desember 1918.
4. Sigfríður Runólfsdóttir, f. 8. mars 1920.
5. Gústaf Adólf Runólfsson vélstjóri, f. 26. maí 1922, drukknaði 7. janúar 1950.
6. Dagmar Runólfsdóttir, f. 4. nóvember 1926. Hún fór til Ameríku.
7. Sævaldur Runólfsson stýrimaður, vélstjóri, f. 10. ágúst 1930.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.