Friðrik Gíslason (Hlíðarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. ágúst 2006 kl. 08:22 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. ágúst 2006 kl. 08:22 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Gíslason var fæddur 11. maí 1870 í Hlíðarhúsi í Vestmannaeyjum og lést 15. janúar 1936. Hann var sonur Gísla bónda og verzlunarmanns Stefánssonar og konu hans Soffíu Lisbeth Andersdóttur frá Stakkagerði. Móðir hennar var Ásdís Jónsdóttir. Kona Friðriks var Anna Thomsen.

Friðrik stundaði sjóróðra en var annars lærður ljósmyndari. Friðrik tók fyrstur manna ljósmyndir í Vestmannaeyjum. Hann var föðurbróðir Friðriks Jessonar safnvarðar í Vestmannaeyjum.

Friðrik var fimur, snarpur og fylginn sér og glímumaður ágætur. Hann kenndi um skeið glímu hjá Glímu- og sundfélagi Vestmannaeyja, sem stofnað var 7. nóvember 1894 með 16 félagsmönnum.

Friðrik lést í byrjun árs 1906, aðeins 35 ára gamalla.



Heimildir