Friðrik Ásmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2013 kl. 18:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2013 kl. 18:14 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Ásmundsson fæddist 26. nóvember 1934 í Reykjavík. Hann fluttist til Vestmannaeyja á fyrsta ári. Hann er sonur Ásmundar Friðrikssonar og Elísu Pálsdóttur.

Friðrik lauk gagnfræðaprófi í Vestmannaeyjum 1951 og farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1957. Hann var skipstjóri á árunum 1959-1975 og tók þá við skólastjórastarfi Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum og gegndi því starfi til ársins 1999. Hann hlaut viðurkenningu árið 1974 fyrir björgun tvegggja áhafna af skipum sem fórust í sept 1964 og mars 1973. Friðrik hefur verið ritstjóri Sjómannadagsblaðs Vestmannaeyja frá árinu 2000.

Kona Friðriks er Valgerður Erla Óskarsdóttir, fædd 24. maí 1937 og búa þau á Löndum við HöfðsvegHöfðavegi 1. Þau eiga þrjá syni, Ásmund, Óskar Pétur og Elías Jörund.

Friðrik var sæmdur hinni íslensku fálkaorðu þann 1. janúar 2012 og hlaut riddarakross fyrir framlag til öryggis sjómanna og menntunar skipstjórnarmanna.

Frekari umfjöllun

Friðrik Ásmundsson skipstjóri, skólastjóri, fæddur 26. nóvember 1934.
Foreldrar hans voru Ásmundur Karl Friðriksson skipstjóri og framkvæmdastjóri á Löndum, síðar í Keflavík, f. 31. ágúst 1910, d. 17. nóvember 1963, og fyrri kona hans Elísa Olga Magdal Pálsdóttir húsfreyja frá Reykjavík, f. 2. september 1907, d. 7. nóvember 1945.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Friðrik er hár vexti og þrekinn, fríður sýnum, svarthærður. Hann er stilltur og prúður í daglegri umgengni, en er annars kátur og skemmtilegur piltur og besti drengur í félagsskap. Hann er lítt vanur veiðum, en virðist ætla að verða góður veiðimaður, ef hann heldur áfram. Hann er vel styrkur, snöggur í snúningum og ósérhlífinn við vinnu.
Hann hefir verið til sjós með föður sínum á togurum, en er nú í millilandasiglingum á fragtskipum, mjög vel látinn af öllum. Hefir nú síðari ár verið í sjómannaskólanum í Reykjavík.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Myndir