Friðfinnur Finnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 10:28 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 10:28 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Leiðrétti og bætti við texta)
Fara í flakk Fara í leit

Friðfinnur var fæddur á Stóruborg undir Eyjafjöllum 22. desember 1901. Hann var sonur Finns Sigurfinnssonar og Ólafar Þórðardóttur en þau áttu 13 börn.

Friðfinnur var meðal annars þekktur fyrir að vera kafari. Segir hann að það hafi atvikast þannig að hann hafi séð auglýsingu þar sem auglýst var eftir mönnum til að dýpka höfnina. Nokkru síðar mætir Friðfinnur Kristni Ólafssyni bæjarstjóra og hann hafði sagt að Friðfinnur væri einmitt maðurinn í starfið. Traustsyfirlýsing bæjarstjóra hafi því orðið til þess að Friðfinnur ákvað að reyna við köfunina.

Friðfinnur starfaði m.a. sem verslunarmaður hjá Helgi Helga Benediktssyni í versluninni Vosbúð en um miðja síðustu öld stofnaði hann eigin verslun, Eyjabúð við Strandveg. Hefur sú verslun verið í eigu fjölskyldunnar frá upphafi.

Friðfinnur var kvæntur Ásta|Ástu frá ??? og áttu þau tvo syni, Jóhann og Finnboga sem báðir eru látnir. Friðfinnur og Ásta bjuggu lengst af í húsinu Oddgeirshólum sem nú ber nafnið Stuðlaberg en byggðu sér síðar hús við Hólagötu og nefndu það Oddgeirshóla.


Heimildir

  • Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1961