Fjarskipti

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2005 kl. 11:25 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2005 kl. 11:25 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Frá miðri 19. öld hafði þróun fjarskiptamála á Íslandi verið stöðug. Ekki skilaði þessi þróun sér til Vestmannaeyja fyrr en árið 1911 og það eftir strit Eyjamanna.

Símasæstrengur er lagður

Eftir miklar umræður og þras var símastrengur lagður á stóran hluta landsins á fyrsta áratug 20. aldarinnar. Ekki treystu menn sér í að leggja sæsímastreng yfir til Vestmannaeyja, ekki var talið að sú framkvæmd skilaði árangri. Árin 1909 var símastrengurinn kominn á Garðsenda og töldu menn því að lítið mál væri að koma strengnum yfir sundið. En ekkert gerðist og næstu framkvæmdir valdamanna voru að bjóða Vestmannaeyingum upp á ritsíma milli Eyja og Reykjavíkur. Ekki voru menn par sáttir og mótmæltu harðlega. Framámenn í bænum stofnuðu með sér félag sem átti að leggja sæsímastreng milli lands og eyja. Þetta var gert af frumkvæðiv Gísli J. Johnsen. Félagið var kallað Rit- og talsímahlutafélag Vestmannaeyja