Fiskiðjan

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. apríl 2012 kl. 12:30 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. apríl 2012 kl. 12:30 eftir Frosti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Fiskiðjan með ógnvaldinn, Eldfellið, í bakgrunni.

Fiskiðjan stendur við Ægisgarð, þar sem áður voru Pallakrærnar gömlu. Fiskiðjan var byggð um miðja 20. öldina þegar uppgangur var sem mestur í byggingu hraðfrystihúsa. Húsið hefur ávallt þótt svipmikið, í raun tvö hús, samtengd með eins konar svalagangi. Húsnæði Fiskiðjunnar er áfast húsnæði Ísfélags Vestmannaeyja, elsta frystihússins í Eyjum. Fyrstu eigendur Fiskiðjunnar voru þeir Ágúst Matthíasson, Þorsteinn Sigurðsson frá Blátindi og Gísli Þorsteinsson frá Laufási. Var Fiskiðjan á sínum tíma eitt af stærstu frystihúsum á Íslandi. Fyrsta janúar 1992 var rekstur Fiskiðjunnar sameinaður rekstri Vinnslustöðvarinnar og fluttist fiskvinnslan smám saman í húsnæði Vinnslustöðvarinnar við Friðarhöfn. Hin síðari ár hefur fiskur ekki verið unninn í Fiskiðjunni en frystiklefar hússins nýttir til geymslu á afurðum. Árið 2003 fengu forsvarsmenn Gullrótar, áhugafélags um tónlist, húsið til afnota fyrir unglingahljómsveitir sem æfingaraðstaðu og er sú aðstaða í vesturenda hússins.