„Fiskiðjan“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Fiskiðjan.jpg|thumb|300px|Fiskiðjan með ógnvaldinn, Eldfellið, í bakgrunni.]] Fiskiðjan stendur við Ægisgarð, þar sem áður voru Pallakrærnar gömlu. Fiskiðjan var byggð um miðja 20. öldina þegar uppgangur var sem mestur í byggingu hraðfrystihúsa. Húsið hefur ávallt þótt svipmikið, í raun tvö hús, samtengd með eins konar svalagangi. Húsnæði Fiskiðjunnar er áfast húsnæði Ísfélags Vestmannaeyja, elsta frystihússins í Eyjum. Fyrstu eigendur Fiskiðjunnar voru þeir [[Ágúst Matthíasson]], [[Þorsteinn Sigurðsson]] frá Blátindi og [[Gísli Þorsteinsson]] frá Laufási. Var Fiskiðjan á sínum tíma eitt af stærstu frystihúsum á Íslandi. Á níunda áratug aldarinnar var rekstur Fiskiðjunnar sameinaður rekstri Vinnslustöðvarinnar og fluttist fiskvinnslan smám saman í húsnæði Vinnslustöðvarinnar við Friðarhöfn. Hin síðari ár hefur fiskur ekki verið unninn í Fiskiðjunni en frystiklefar hússins nýttir til geymslu á afurðum. Árið 2003 fengu forsvarsmenn ''Gullrótar'', áhugafélags um tónlist, húsið til afnota fyrir unglingahljómsveitir sem æfingaraðstaðu og er sú aðstaða í vesturenda hússins.
[[Mynd:Fiskiðjan.jpg|thumb|300px|Fiskiðjan með ógnvaldinn, Eldfellið, í bakgrunni.]] Fiskiðjan stendur við Ægisgarð, þar sem áður voru Pallakrærnar gömlu. Fiskiðjan var byggð um miðja 20. öldina þegar uppgangur var sem mestur í byggingu hraðfrystihúsa. Húsið hefur ávallt þótt svipmikið, í raun tvö hús, samtengd með eins konar svalagangi. Húsnæði Fiskiðjunnar er áfast húsnæði Ísfélags Vestmannaeyja, elsta frystihússins í Eyjum. Fyrstu eigendur Fiskiðjunnar voru þeir [[Ágúst Matthíasson]], [[Þorsteinn Sigurðsson]] frá Blátindi og [[Gísli Þorsteinsson]] frá Laufási. Var Fiskiðjan á sínum tíma eitt af stærstu frystihúsum á Íslandi. Á níunda áratug aldarinnar var rekstur Fiskiðjunnar sameinaður rekstri Vinnslustöðvarinnar og fluttist fiskvinnslan smám saman í húsnæði Vinnslustöðvarinnar við Friðarhöfn. Hin síðari ár hefur fiskur ekki verið unninn í Fiskiðjunni en frystiklefar hússins nýttir til geymslu á afurðum. Árið 2003 fengu forsvarsmenn ''[[Gullrót]]ar'', áhugafélags um tónlist, húsið til afnota fyrir unglingahljómsveitir sem æfingaraðstaðu og er sú aðstaða í vesturenda hússins.




[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Stubbur]]

Útgáfa síðunnar 22. júní 2006 kl. 14:54

Fiskiðjan með ógnvaldinn, Eldfellið, í bakgrunni.

Fiskiðjan stendur við Ægisgarð, þar sem áður voru Pallakrærnar gömlu. Fiskiðjan var byggð um miðja 20. öldina þegar uppgangur var sem mestur í byggingu hraðfrystihúsa. Húsið hefur ávallt þótt svipmikið, í raun tvö hús, samtengd með eins konar svalagangi. Húsnæði Fiskiðjunnar er áfast húsnæði Ísfélags Vestmannaeyja, elsta frystihússins í Eyjum. Fyrstu eigendur Fiskiðjunnar voru þeir Ágúst Matthíasson, Þorsteinn Sigurðsson frá Blátindi og Gísli Þorsteinsson frá Laufási. Var Fiskiðjan á sínum tíma eitt af stærstu frystihúsum á Íslandi. Á níunda áratug aldarinnar var rekstur Fiskiðjunnar sameinaður rekstri Vinnslustöðvarinnar og fluttist fiskvinnslan smám saman í húsnæði Vinnslustöðvarinnar við Friðarhöfn. Hin síðari ár hefur fiskur ekki verið unninn í Fiskiðjunni en frystiklefar hússins nýttir til geymslu á afurðum. Árið 2003 fengu forsvarsmenn Gullrótar, áhugafélags um tónlist, húsið til afnota fyrir unglingahljómsveitir sem æfingaraðstaðu og er sú aðstaða í vesturenda hússins.