Filippus Bjarnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 13:37 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 13:37 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Filippus fæddist 15. mars 1822. Hann þótti hreystimaður og óhemju sterkur. Hann fékk því viðurnefnið Filippus sterki. Fyrri kona hans var Guðrún Árnadóttir. Filippus kvæntist henni 1853 og missti hana eftir 13 ára hjónaband. Hún lést af barnsförum. Sonur þeirra var Árni í Ásgarði. Árið 1874 giftist Filippus Salvöru Þórðardóttur. Filippus lést árið 1900 og flutti þá Salvör til Árna í Ásgarði. Salvör lést árið 1911.


Heimildir

  • Þorsteinn E. Víglundsson. Blik, ársrit gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1962.