„Filippus Árnason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:
Filippus slasaðist 7. júní 1970 við störf sín og jafnaði sig aldrei að fullu upp frá því. Filippus var félagslyndur maður og hafði mikinn áhuga á þjóðfélagsmálum. Hann var skyldurækinn og átti safn vandaðra bóka.

{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1975.}}
* Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1975. Vestmannaeyjum. }}
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Formenn]]

Útgáfa síðunnar 24. júlí 2006 kl. 13:41

Filippus Árnason fæddist í Vestmannaeyjum 7. júní 1902 og lést 1. júní 1974. Hann var sonur Gíslínu Jónsdóttur og Árna Filippussonar sem bjuggu í Ásgarði og var Filippus gjarnan kenndur við heimili sitt sem Filippus í Ásgarði. Filippus var kvæntur Jónínu Ólafsdóttur.

Filippus var tengdur Vestmannaeyjahöfn í yfir 40 ár. Hann átti meðal annars bátana Létti og Brimil. Árið 1940 varð Filippus tollvörður og vann við tollgæslu upp frá því, hin síðari ár sem yfirtollþjónn í Vestmannaeyjaumdæmi.

Filippus slasaðist 7. júní 1970 við störf sín og jafnaði sig aldrei að fullu upp frá því. Filippus var félagslyndur maður og hafði mikinn áhuga á þjóðfélagsmálum. Hann var skyldurækinn og átti safn vandaðra bóka.

Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1975. Vestmannaeyjum.