Fell

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 10:59 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 10:59 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Fell stendur við Vestmannabraut 34. Magnús Magnússon, formaður, reisti húsið árið 1907. Húsið hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu og árið 2006 bjó þar sonarsonur og nafni Magnúsar, Magnús Grímsson fyrrverandi skipstjóri, ásamt konu sinni Aðalbjörgu Þorkelsdóttur frá Sandprýði.

Fell við Vestmannabraut 34.

Heimildir

  • Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.