Faxasker

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 16:29 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 16:29 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Oft brimar yfir Faxasker í vondu veðri. Norðurklettar í baksýn.

Faxasker er um 10 m hátt sker norðan við Ystaklett. Skerið að mestu gróðurlaust því algengt er að brimi yfir það í vondu veðri.

Oft er það mikill öldugangur á milli Faxaskers og Ystakletts, jafnvel þegar að lyngt er, að róðrarmenn höfðu það að sínum sið að stoppa til hvíldar við Lat áður en róið var inn í innsiglinguna á Heimaey.

Forsíða Morgunblaðsins að morgni 8. janúar 1949

Neyðarskýli er á skerinu og viti, sem hvorttveggja var komið upp í kjölfar mikils sjóslyss sem átti sér stað að morgni 8. janúar 1949, þegar að vélbáturinn Helgi strandaði á Faxaskeri með tíu manns um borð, og létust allir í slysinu. Slyssins varð vart frá Kirkjubæ, en björgunaraðgerðir reyndust árangurslausar.

Heimildir

  • Morgunblaðið, 6. tbl, 37. árgangur, 8. janúar 1949. Síða 1 og síða 12
  • Morgunblaðið, 8. tbl, 37. árgangur, 10. janúar 1950. Síða 2