Eyjabúð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. ágúst 2006 kl. 19:38 eftir Gdh (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. ágúst 2006 kl. 19:38 eftir Gdh (spjall | framlög) (Kommusetning)
Fara í flakk Fara í leit
Eyjabúð

Eyjabúð er ein elsta starfandi verslun í Vestmannaeyjum. Búðin, sem stendur á horni Strandvegar og Skildingavegar, er í fjölskyldueign og er það Friðfinnur Finnbogason sem fer fyrir henni. Hann er þriðji ættliðurinn sem kemur að rekstrinum. Afi hans, Friðfinnur Finnsson frá Oddgeirshólum stofnaði reksturinn á fimmta áratug síðustu aldar og sonur hans, Finnbogi Friðfinnsson, rak verslunina þar til sonur hans tók við af honum. Eyjabúð er og hefur verið útgerðar- og byggingarvöruverslun.