Eyjólfur Pétursson (skipstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2012 kl. 10:42 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2012 kl. 10:42 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Eyjólfur

Eyjólfur Pétursson fæddist í Laugardal í Vestmannaeyjum 4. nóvember 1946. Hann er sonur hjónanna Sigríðar Eyjólfsdóttur og Péturs Þorbjörnssonar. Eyjólfur Pétursson er kvæntur Ingveldi Gísladóttur og eiga þau tvö börn.

Eyjólfur byrjaði sem hálfdrættingur á togurum frá Reykjavík með föður sínum sem var skipstjóri hjá Bæjarútgerðinni. Eyjólfur var háseti og stýrimaður þar til hann tók við togaranum Hallveigu Fróðadóttur árið 1969 og var með hana í þrjú ár. Árið 1972 var hann ráðinn sem skipstjóri á skuttogarann Vestmannaey. Á fyrstu 15 mánuðunum undir hans stjórn fiskaði Vestmannaey 4,200 tonn. Eyjólfur gerðist meðeigandi í útgerð Vestmannaeyjar en seldi sinn hlut í útgerðinni rétt fyrir aldamótin 2000 og flutti til Reykjavíkur þar sem hann hóf sjoppurekstur í Hafnarfirði.

Eyjólfur Pétursson var aflakóngur Vestmannaeyja 1966 og 1967.


Heimildir