Eygló Björnsdóttir (Reykholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 07:18 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 07:18 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Bætti við texta)
Fara í flakk Fara í leit

Eygló Björnsdóttir fæddist 19. október 1951 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar voru Björn Kristjánsson og Guðbjörg Gunnlaugsdóttir frá Gjábakka. Eygló er gift Friðriki Jóhannssyni og eiga þau þrjú börn. Eygló ólst upp á Urðaveginum og Bakkastígnum en eftir það bjó hún með manni sínum og börnum á Strembugötu.

Eygló lauk kennaraprófi 1971 og starfaði sem kennari í Barnaskóla Vestmannaeyja í fjölda mörg ár. Árið 2000 flutti Eygló og fjölskylda á Akureyri og þar starfar Eygló sem verkefnastjóri gagnasmiðju Háskólans á Akureyri og kennir einnig við kennaradeildina þar.