„Elliðaey“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
2.048 bætum bætt við ,  5. desember 2005
ekkert breytingarágrip
(setti inn texta eftir Gísla Lárusson)
Ekkert breytingarágrip
Lína 63: Lína 63:


Á '''Norður-Búrum''' er enginn lundastaður, enda er gróður enginn.  Að austan er þverhnípt standberg, og verpir þar nokkuð mikið af svartfugli.  Að vestan er hallandi brekka alla leið niður að Réttarurð.  Er hallinn sennilega um 45 gráður, en þó sæmilega gengur.  Efni bergsins er móberg.
Á '''Norður-Búrum''' er enginn lundastaður, enda er gróður enginn.  Að austan er þverhnípt standberg, og verpir þar nokkuð mikið af svartfugli.  Að vestan er hallandi brekka alla leið niður að Réttarurð.  Er hallinn sennilega um 45 gráður, en þó sæmilega gengur.  Efni bergsins er móberg.
Frá efri staðnum á '''Suður-Búrum''' halla móbergslögin til suðurs alla leið niður í sjó.  Neðst er mikil flá, sem heitir '''Búraflá'''.  Þar fyrir ofan er nokkuð stórt lón, sem heitir '''Búralón, og er í því bæði flóð og fjara.  Að ofan er urð, sem heitir '''Vatnsurð''', og að vestan er smápallur, þar sem vatn seytlar.  Er svo aðeins á þessum eina stað á eynni, en gallinn er sá, að vatnið er mjög salt.
Þegar komið er upp úr urðinni, liggur leiðin með lágum hamri, en mjög löngum, sem nær alla leið að syðstu brún.  Þessi hamar heitir '''Vatnsurðarhamar''', og er undir honnum gróin urð, sem heitir '''Vatnsurð'''.  Er hún oft þéttsetin fugli.  Syðst í urðinni, eða á '''Landsuðurnefinu''', eru mjög góðir lundastaðir, bæði þegar fuglinn flýgur norður eða suður.  Þegar fuglinn flýgur í norður, er setið á steini, sem er alveg frammi í brúninni, og flýgur þar fyrir mjög mikið af fugli.  Hefur og fengist í þessum stað mesta veiði, sem vitað er um á einum degi, eða 1000 fuglar.  Rétt ofan við þessa setu er önnur seta, þar sem veiðist oft sæmilega, en ekki má vera nema lítill vindur þar.  Áttin í báðum þessum stöðum er norðaustlæg.  Þegar fuglinn flýgur í suður, er setan í upphlaðinni vörðu rétt hjá neðri setunni.  Þar er áttin suðaustankaldi.
Svo er haldið áfram, og þá tekur við suður-brúnin, mjög mikill hamraveggur, sem nær alla leið vestur að '''Háubælum'''.  Rétt vestan við nefið er sennilega besti lundaveiðistaður í eynni.  Er setan þar um fjórir metrar neðan við brúnina.  Þessi staður heitir '''Skora'''.  Þarna veiðist mjög vel, ef áttin er hagstæð, en þá þarf að vera sunnan-suðaustankaldi.  Mesta veiði á þessum stað eru 900 fuglar á 8 klukkustundum.  Niður af setunni er nokkuð mikið af svartfugli.  Það er kallaðar '''Landsuðurshillur'''.  Þarna var oft sigið til eggja, en var erfitt, því að loft er mikið.  Eru þar um 300 egg.


==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
308

breytingar

Leiðsagnarval