„Elliðaey“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
2.824 bætum bætt við ,  27. desember 2005
ekkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 41: Lína 41:
== Ellirey - Gengið við á gömlum og nýjum lundaveiðistöðum ==
== Ellirey - Gengið við á gömlum og nýjum lundaveiðistöðum ==
''Skráð af Pétri Guðjónssyni frá Oddsstöðum og síðar Kirkjubæ.
''Skráð af Pétri Guðjónssyni frá Oddsstöðum og síðar Kirkjubæ.
[[Mynd:Ellidaey.jpg||thumb|500px|Perla Atlantshafsins Elliðaey.   
[[Mynd:Ellidaey.jpg||thumb|450px|Perla Atlantshafsins Elliðaey.   
''Mynd Ívar Atlason - ágúst 1997'']]
''Mynd Ívar Atlason - ágúst 1997'']]

Lína 91: Lína 91:

Upp af nefinu er haldið upp troðna fjárgötu, sem var áður mjög greiðfær, en er nú orðin gróin, síðan fé hætti að vera í eynni.  Þegar upp er komið, komum við að nokkuð stórum steini.  Austan í honum er seta, og veiddist þar vel í byrjun.  Áttin er vestlæg. Þetta er kallað '''Árnasafn'''.  Norðvestan af þessum stað er seta, sem heitir '''Moldaskora'''.  Þar veiðist oft nokkuð vel, þegar lítið er að hafa annars staðar.  Þarna vestur af og norðar er nokkuð langur laus hamar, sem stendur á allbröttum mófláa, og nær hann nokkru lengra fram.  Þetta heitir '''Moldi'''.  Fyrir miðjum hamrinum er seta með sama nafni.  Frammi í brúninni á móflánni fyrir miðju, nokkra metra niðri í berginu, er allstór bekkur, sem nefndur er '''Moldabekkur'''.  Þar verpa nokkrir fýlar, og fyrir neðan þennan bekk er svartfuglabæli, sem heitir '''Moldabæli'''.  Er þar um 80 egg.  norðan við Molda eru nokkuð miklar flatir, sem heita '''Suðurflatir'''.  Þar var oft heyjað áður fyrr.  Þess skal getið, að þegar Presthúsin fengu jarðarréttindi með hlunnindum í Ellirey, var eina grasnyt þeirra Suðurflatirnar.  

Þá er haldið upp á brún '''Háubæla'''.  Þar syðst er seta, sem heitir '''Jónsnef''', og veiðist einkum svartfuglg þar.  Áttin er suðvestlæg.  Svo er haldið norður með brúninni á hæsta stað '''Háubæla'''.  Síðan fer að halla til vesturs, og nokkru vestar er Bringur, sem nær að næstu brekku.  Þegar niður er komið og gengið upp með Bringnum að brúninni, er komið að syllu eða bekk, sem gengin er í austur. Er þar rúmgóður pallur.  Hér er maður þá kominn nokkuð langt niður í '''Háubæli''', enda sést um þau öll af þessum stað.  Er mjög fallegt að horfa á allar þær þúsundir fugla, sem þarna eiga heimkynni sín, enda er þetta helzti staður, sem gestum og ferðamönnum er sýndur.  Þegar horft er í austur og aðeins ofar, er stór bekkur, sem heitir '''Fýlabekkur'''.  Er þar um 40 til 50 fýlar.  Þegar farið var að ná í svartfuglaegg, var fyrst farið niður á þennan bekk og svo niður af honum á nokkrum stöðum, enda mjög mikið af eggjum um öll '''Háubæli'''.  Ekki er unnt að segja til um, hve mörg egg eru þar.  Neðarlega í '''Háubælum'''er stór fláki, sem heitir '''Hurð''', og þar niðri undir sjó er bæli, sem nefnist '''Hurðabæli'''.  Ekki verður komist á það nema af sjó.  Og svo er þröngt þar, að menn verða að skríða um það.  Á þessum stað eru um 150 egg.  Beint undir pallinum er stórt bæli, sem heitir '''Loftbæli''', og eru þar um 200 egg.
Nú er haldið til baka, og tekur þá við nokkuð löng og brött brekka, sem nær alla leið að miklum höfða, sem '''Lauphöfðar''' heita, en er vanalega kallaður '''Lauphausar'''.  Þar sunnan undir er nokkuð stór skúti, sem nefndur er '''Suðurflatarheyból'''.  Þar var heyið af '''Suður-Flötunum''' geymt, þar til það var flutt í land.  Þá var því gefið þar niður beint fram af ofan í bátinn, sem var að sækja það.  Þarna til norðurs er nokkuð stórt svartfuglabæli, sem nefnist '''Heybólsbæli'''.  Á þetta bæli er hægt að ganga án þess að vera bundinn, enda oft farið þangað til veiða.  Þessu næst er gengið til austurs sunnan undir höfðanum, þar til upp er komið.  Er þar haldið í vestur og eru á báðar hendur brattar brekkur.  Nær sú að norðan ofan í sjó að vestan og ofan í '''Vestururð''' að austan.  Vestast er stór Bringur.  Utan í honum er seta, og þar fyrir neðan, alveg frammi í brúninni, er önnur seta.  Í þessum stöðum báðum veiðist oft mjög vel.  Áttin norðvestlæg.  Rétt norðan við þessar setur eru aðrar tvær setur, þegar áttin er á suð-vestan, en þar veiðist ekki eins vel.  Norðan og vestan í höfðanum er gil, sem nær ofan í sjó.  Heitir þar '''Gípur'''.  Mjög mikið af svartfugli er vestan í höfðanum.

==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
308

breytingar

Leiðsagnarval