„Elísabet Eiríksdóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Elísabet Eiríksdóttir''' húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1760 og lést 6. mars 1809.<br> Maður Elísabetar var [[Eyjólfur Hreiðarsson (Vilborga...)
 
m (Verndaði „Elísabet Eiríksdóttir (Vilborgarstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 21. maí 2014 kl. 13:43

Elísabet Eiríksdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1760 og lést 6. mars 1809.

Maður Elísabetar var Eyjólfur Hreiðarsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1747, d. 13. september 1827. Elísabet var fyrri kona hans. Síðari kona hans var Sólrún Bjarnadóttir húsfreyja.
Elísabet ól a.m.k. 12 börn og missti 11 nýfædd og eitt andvana.
Börn Elísabetar og Eyjólfs hér:
1. Jón Eyjólfsson, f. í desember 1785, d. 8. janúar 1786.
2. Eiríkur Eyjólfsson, f. 6. mars 1787, d. 12. mars 1787.
3. Björn Eyjólfsson, f. 4. maí 1788, d. 12. maí 1788.
4. Guðmundur Eyjólfsson, f. 26. apríl 1789, d. 4. maí 1789.
5. Þóra Eyjólfsdóttir, f. 7. september 1790, d. 13. september 1790.
6. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. í janúar 1792, d. 23. janúar 1792.
7. Rannveig Eyjólfsdóttir, f. 7. apríl 1793, d. 13. apríl 1793.
8. Sigríður Eyjólfsdóttir, f. 24. mars 1794, d. 29. mars 1794.
9. Guðríður Eyjólfsdóttir, f. 24. júlí 1795, d. 28. júlí 1795.
10. Andvana barn, f. 1. september 1796.
11. Ingveldur Eyjólfsdóttir, f. 27. febrúar 1798, d. 6. mars 1798.
12. Sigurður Eyjólfsson, f. 18. desember 1801, d. 27. desember 1801.


Heimildir