Elísabet Arnoddsdóttir frá Gjábakka

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2007 kl. 01:40 eftir Eyglob (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2007 kl. 01:40 eftir Eyglob (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jóna Elísabet Arnoddsdóttir fæddist 26. ágúst 1890 að Miðnesi. Foreldrar hennar hétu Arnoddur Jónsson og Guðbjörg Jónsdóttir. Þau Arnoddur og Guðbjörg bjuggu ekki saman og skömmu eftir fæðingu var Elísabet tekin í fóstur til föður síns og hans konu, og var alin upp þar við mikið ástríki sem þeirra sameiginlegt barn væri. 17. desember 1909 giftist Elísabet Gunnlaugi Sigurðssyni . Þau bjuggu alla tíð á Gjábakka, sem var við Bakkastíg 17 og fór undir hraun 1973.