Elín Erlendsdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. febrúar 2015 kl. 20:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. febrúar 2015 kl. 20:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Elín Erlendsdóttir''' vinnukona í Norðurgarði fæddist 1792 á Felli í Suðursveit og lést 17. nóvember 1821 í Norðurgarði.<br> Foreldrar hennar voru ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Elín Erlendsdóttir vinnukona í Norðurgarði fæddist 1792 á Felli í Suðursveit og lést 17. nóvember 1821 í Norðurgarði.
Foreldrar hennar voru Erlendur Erlendsson bóndi, f. 1744, á lífi 1801, og kona hans Þórdís Jónsdóttir húsfreyja, f. 1749 á Holtum á Mýrum í A-Skaft., á lífi 1816 í Stóru-Mörk u. Eyjafjöllum.

Elín var 9 ára með foreldrum sínum á Hellum í Suðursveit 1801, var vinnukona í Efstakoti u. Eyjafjöllum 1816.
Hún fluttist frá Efstakoti að Nýjabæ 1820, var vinnukona þar til 1821, en var vinnukona í Norðurgarði við andlát í nóvember á því ári.
Elín var ógift og barnlaus í Eyjum.
Hún lést úr landfarsótt 1821.


Heimildir