Elín Þorkelsdóttir (Kokkhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. nóvember 2014 kl. 20:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. nóvember 2014 kl. 20:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Elín Þorkelsdóttir''' frá Kokkhúsi fæddist 1841 og lést 18. mars 1883.<br> Foreldrar hennar voru Þorkell Brandsson tómthúsmaður í...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Elín Þorkelsdóttir frá Kokkhúsi fæddist 1841 og lést 18. mars 1883.
Foreldrar hennar voru Þorkell Brandsson tómthúsmaður í Kokkhúsi, f. 1815, og kona hans, Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 7. mars 1814, d. 10. júní 1866.

Elín var heyrnar- og mállaus. Hennar er ekki getið við skírn.
Hún var með foreldrum sínum 1941, á fyrsta ári, og til 1862. Þá yfirgaf faðir hennar fjölskylduna, „óvíst hvert“.
Frá þeirri stundu var Elín niðursetningur í Eyjum.
Hún var niðursetningur á Búastöðum 1866, á Vilborgarstöðum 1870, á Oddsstöðum 1874 og enn við andlát 1883.
Hún var ógift og barnlaus.


Heimildir