Eiríkur Eiríksson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. september 2014 kl. 17:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. september 2014 kl. 17:44 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Eiríkur Eiríksson sjávarbóndi á Vilborgarstöðum fæddist 1783 í Mýrdal og lést 11. desember 1855.
Faðir er ókunnur.
Móðir Eiríks var Guðlaug Guðmundsdóttir, síðar húsmóðir í Reynisholti í Mýrdal, d. 29. janúar 1796.

Eiríkur var vinnumaður í Mýral 1801, bjó á hluta Péturseyjar í Mýrdal 1809 og líklega til 1817, en þá fór hann til Eyja. Hann var bóndi og sjómaður á Vilborgarstöðum.

Eiríkur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (1809), var Guðrún Runólfsdóttir, f. 1782, d. 19. ágúst 1843.
Barn þeirra hér:
1. Kristín Eiríksdóttir, f. 1811. Hún var hjá þeim 1828.


II. Síðari kona Eiríks, (24. október 1849), var Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 1805 í Árnagerði í Fljótshlíð, d. 1. júlí 1864. Við giftingu var hún 44 ára, en hann 72 ára.
Börn þeirra hér:
1. Jón Eiríksson, f. 17. ágúst 1840, d. 17. ágúst 1840 úr ginklofa.
2. Guðrún Eiríksdóttir, f. 1848. Hún fluttist til Utah 1886.
3. Eiríkur Eiríksson, f. 8. janúar 1845, d. 18. janúar 1845 úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.