Einar Valur Bjarnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2012 kl. 10:08 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2012 kl. 10:08 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Else og Einar.

Einar Valur Bjarnason var sjúkrahúslæknir. Einar fæddist í Vestmannaeyjum þann 25. mars 1932. Foreldrar hans voru hjónin í Breiðholti, Bjarni Bjarnason dýralæknir og Sigurbjörg Einarsdóttir.

Einar varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1952. Tók próf cand. med frá Háskóla Íslands árið 1961. Einar starfaði sem aðstoðarlæknir á Landspítalanum frá 1961 til 1962 og við Sjúkrahús Vestmannaeyja 1962 til 1963. Hann vann síðan við lyflækningadeild Amts og Bys. Sgh. í Kolding í Danmörku og víðar erlendis. Hann fékk almennt lækningaleyfi árið 1972 og varð sérfræðingur í lyflækningum árið 1974. Einar Starfaði sem yfirlæknir við lyflækningadeild Sjúkrahússins í Vestmannaeyjum til ársins 2000.

Fyrri kona hans er Jakobína Hjálmarsdóttur og þau áttu saman tvær dætur.

Seinni kona hans er Else Madsen og þau eiga saman einn son. Þau búa á Selfossi.



Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.